fasteignasölur.is
Eskivellir 21A
Opið hús 22. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 25

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Eskivellir 21A,  102.8 fm 3 herb. íbúð á 3 hæð í góðu vel staðsettu lyftuhúsi, efst á Völlunum.  Sérinngangur af gustlokuðum svalagangi með fínu útsýni, eina íbúðin sem er með sérinngang af ganginum. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Sérþvottahús með geymslu innaf. Stórt alrými með eldhúsi og stofurými, gengið út á svalir í suður með góðu útsýni. Parket og flísar á gólfum. 

Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 230-4292, nánar tiltekið eign merkt 03-04, birt heildarstærð 102.8 fm. Þar af er íbúðin skráðir 94,6 fm og sérgeymsla í sameign á sama stigagangi merkt 01-03-05 er skráð 8,2 fm. Svalir eru til suðurs og eru skráðar 10,3 fm. 

Eignin skiptist í:Forstofu/gang 2 svefnherbergi, alrými sem er stofa, eldhús, sérþvottahús með geymslu innaf og baðherbergi.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Nánari lýsing eignarinnar:
SÉRINNGANGUR AF SVALAGANGI.
FORSTOFA/GANGUR:  Með parketi og skápum. 
HERBERGI I: Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með góðum skápum.
HERBERGI II: Rúmgott parketlagt herbergi með skápum. 
ALRÝMI/STOFA OG ELDHÚS: Rúmgott parketlagt alrými með L laga innréttingu með bakaraofni í vinnuhæð. Opið yfir í rúmgóða parketlagða stofu/borðstofu, gengið út á svalir í suður með fínu útsýni. 
BAÐHERBERGI: Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og veggir, vegghengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu og góð innrétting. 
SÉRÞVOTTAHÚS: Flísalagt gólf og innrétting. Innaf er GEYMSLA skráð 5,2 fm.
SAMEIGN: Geymslur fyrir hæðina eru á sama gangi og íbúðin og þar á íbúðin 8,2 fm sérgeymslu. 
ÖNNUR SAMEIGN:  Stór sameiginleg hjóla og vagnageymsla. 
BÍLASTÆÐI: Góð bílastæði á sameiginlegri lóð. 
SKÓLI OG LEIKSKÓLI: Grunn og leikskóli eru í um 10 mínutna göngufjarlægð og í hverfinu er mikil og góð þjónusta. 
AFHENDING:  Íbúðin getur verið laus tiltölulega fljótlega. 

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eskivellir 21A

221 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð102,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
67.900.000 kr.661 þ./m²
Byggingarár2011InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF2304292Fasteignamat72.700.000 kr.Brunabótamat52.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑