fasteignasölur.is
Lyngmóar 12
1 af 34

Um eignina

Sigrún Matthea hjá RE/MAX kynnir:  Björt, rúmgóð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í litlu fjölbýli, eign á annarri hæð ásamt bílskúr Lyngmóar 12 eign á frábærum stað í Garðabæ. Barnvænt svæði þar sem stutt er í verslanir og ýmsa aðra þjónustu á Garðatorgi, stutt að sækja leik- grunnskóla og Fjölbraut í Garðabæ, á íþróttasvæði Stjörnunnar og sundlaug í Ásgarði. 
Stærð eignar samkvæmt HMS er íbúð 97m2 + bílskúr 16,2m2 + geymsla 6,3m2  samtals 113,2m2
Hér getur þú skoðað eignina í 3D    
Viltu fá sent söluyfirlit strax opna hér 
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi, bílskúr og sér geymslu,  ásamt þvotta - þurrkherbergi, hjóla og vagnageymslu í sameign. 
Fallegt útsýni til norðurs og vesturs er úr stofu. 
Eign getur verið laus við kaupsamning. Eign sem vert er að skoða 

Upplýsingar um eignina veitir Sigrún Matthea lgf., sími 695-3502   eða á netf:   sms@remax.is
Nánari lýsing:
Hol: Flísar á gólfi, fatahengi. 
Stofa / Borðstofa:  Bjart rúmgott rými flísar á gólfi fallegt útsýni er frá stofu, gengið er úr borðstofu út á svalir. 
Eldhús:  Innréttingar gott skápa og vinnupláss, flísar á gólfi. 
Gangur:  Flísar á gólfi 
Herbergi I:  Harðparket á gólfi. 
Herbergi II:  Góðir fataskápar, harðparket á gólfi. 
Baðherbergi: Innrétting, walk in sturta upphengt salerni, gert ráð fyrir þvottavél á baðherbergi. 
Svalir:  Rúmgóðar svalir m/ svalalokun,  stærð 13 m2 svalir eru ekki í m2 stærð eignar. 
Bílskúr:  Rafmagn, hiti og vatn er í bílskúr stærð 16,2m2
Geymsla:  Sér geymsla er í sameign, stærð geymslu er 6,3m2 
Sameign:  Þvotta og þurrkherbergi er í sameign, ásamt hjóla og vagnageymslu. 
Skipt hefur verið um glugga, gler og útihurð á suðurhlið stigahúss
Húsið er klætt viðhaldslítilli klæðningu. 
Seljendur hafa ekki búið í eigninni. Hluti af innbúi getur fylgt með í kaupum á eign. 
Á baklóð er stór leikvöllur fyrir börn. 
Fjöldi bílastæða er á lóð fyrir framan hús. 


Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Matthea í síma 695-3502, sms@remax.is

Í lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á  að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.  

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800,- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

 

Lyngmóar 12

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð113,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
79.900.000 kr.706 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF2071621Fasteignamat76.450.000 kr.Brunabótamat56.860.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑