1 af 29
Um eignina
Miðás 5, 675 Raufarhöfn. Fastanr: 216-7131. Húsið er byggt árið 1968, u.þ.b. 1997 var húsið einangrað og klætt að utan með bárujárni, sama á við um þakið. Sunnan við húsið er áfastur sólpallur byggður 1999. Húsið er á tveim hæðum, á efri hæð, sem telst vera 116,3 m2, eru fjögur svefnherbergi og gangur milli þeirra, baðherbergi, eldhús, stofa, hol og anddyri. Á neðri hæðinni er þvottahús, búr, bílgeymsla, lítið klósett, „miðstöðvarkompa“ og geymsla. Baðherbergi var endurnýjað í hólf og gólf árið 1999, ný innrétting, bað og klósett, flísalagt og hitapípur með hitastýringu settar í gólf, einnig var eldhúsgólf flísalagt og settur hitapípur með hitastýringu í það. Sama ár var byggður sólpallur sunnan við húsið og dren vestan og sunnan við húsið endurbætt. Settar voru nýjar útihurðir út á sólpallinn úr stofunni og nýjar útihurðir aðaldyramegin á efri hæð. Einnig voru allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar og lagðar í eir. Árið 2004 var eldhúsið tekið í gegn, ný innrétting, ný keramikhella, nýr bakarofn og uppþvottavél tveggja ára gömul. Árið 2006–2007 voru settir nýir ál/plast gluggar í allt húsið nema í geymslu að vestan og í bílgeymslu á neðri hæðinni, einnig var sett ný ál/plast útihurð á neðri hæð úr þvottahúsi, gluggarnir voru felldir í gömlu timburgluggana þar sem þeir voru áður með áli. Nýir ál/plast gluggar eru til fyrir geymslu að vestan og fyrir bílgeymslugluggann, einnig manngengar dyr í bílgeymsluna. Árið 2007–2008 var sett nýtt plastparkett á öll svefnherbergi og ganginn milli þeirra. Parkett í stofu og holi þyrfti að pússa upp og lakka og lagfæra við dyr út á pall og við anddyri, flísar og hitapípur með stýringu er til á anddyri, að öðru leyti tel ég að efri hæðin sé í mjög góðu ástandi. Þvottahúsið á neðri hæðinni þyrfti að gera talsvert fyrir, aðallega taka upp flísar af gólfi og endurnýja, þegar við keyptum var raki í gólfinu sem leitaði aðeins upp í vegginn við miðstöðvarkompuna, þar myndaðist útfelling, ekki hef ég orðið vör við raka þar eftir að dreninu var lagfært og skipt var um útidyr á neðri hæð. Í bílgeymslunni var rakamyndun við suðurvegg sem ekki hefur orðið vart við eftir lagfæringu á dreni, klæðning austur úr bílgeymslunni er orðin mjög léleg og þar hefur komið raki inn í austanáttum og vatnsveðri.
Miðás 5
675 Raufarhöfn
TegundEinbýlishúsStærð236,5 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
41.700.000 kr.176 þ./m²
Byggingarár1968InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2167131Fasteignamat17.700.000 kr.Brunabótamat98.070.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 29 myndir
Upp ↑



























