fasteignasölur.is
Gautland 7
1 af 27

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulögð 86,20 fm 4. herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð með stórum suðursvölum með glæsilegu útsýni á eftirsóttum stað í Fossvogi. 
Einungis sex íbúðir í stigaganginum, stór sameiginlegur garður og næg bílastæði fyrir framan húsið. Stutt er í Fossvogsdalinn og alla helstu þjónustu, þ.á.m. verslunarkjarnann Grímsbæ, veitingastaðinn Fossinn, leik- og grunnskóla og íþróttastarf í Víkinni.


Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í rúmgóðu opnu rými. Glæsilegt útsýni. Parket á gólfi.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Bakaraofn í vinnuhæð. Uppþvottavél. Rúmgott með góðu plássi fyrir eldhúsborð. Parket á gólfi.
Baðherbergið er með hvítri innréttingu undir handlaug og speglaskáp. Rúmgóð sturta. Flísalagt í hólf og gólf.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum meðfram heilum vegg. Parketlagt. Útgengt á einstaklega rúmgóðar suðursvalir með glæsilegu útsýni.
Tvö barnaherbergi, bæði parketlögð. Það eru ekki fastir fataskápar í barnaherbergjum. 

Geymsla: 5,4 fm sérgeymsla með hillum í kjallara.
Þvottahús: sameiginlegt þvottahús í kjallara, hver íbúð með sínar vélar.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.

2023 - Nýtt parket. Ný blöndunartæki frá Tengi. Íbúð máluð. Rafmagnslagnir endurnýjaðar og nýtt rafmagn dregið í alla íbúðina.
2022 - Nýtt gólfefni á þvottahús og hjólageymslu 
2020 - Húsið múrviðgert að utan og málað.
2015 - Gler endurnýjað á norðurhlið eftir þörfum
2010 - Húsgaflinn austanmegin klæddur 
2006 - Stétt fyrir framan hús hellulögð og hiti settur í hana.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Gautland 7

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð86,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
79.990.000 kr.928 þ./m²
Byggingarár1969InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2036947Fasteignamat72.600.000 kr.Brunabótamat46.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑