Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 4ra herbergja 112,0 m2 íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílageymslu við Fróðengi 14 í Grafarvogi. Eignin er skráð samtals 136 m2 og skiptist skráningin í íbúð 112 m2 og stæði í bílageymslu 24 m2. Athygli er vakin á því að bílastæðið er hluti af skráðri fermetratölu. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, þvottahús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Sér bílastæði er í lokaðri bílageymslu. Sér geymsla í sameign í kjallara. Frábær staðsetning, stutt frá leik- grunn- og framhaldsskóla, verslunum í Spönginni, íþróttum og afþreyingu í Egilshöll og golfvelli GR við Korpúlfsstaði.
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda þá var húsið sprunguviðgert og málað að utan 2021. Þak, þakkantur og rennur á húsinu voru endurnýjað árið 2025.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit
Nánari lýsing:
Forstofa/hol er með flísum og parketi á gólfi ásamt fataskáp.
Stofa/borðstofa er með parketi á gólfi. Útgengt úr borðstofu á skjólgóðar suður svalir.
Eldhús er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, bakaraofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og ísskáp við hlið innréttingar. Góður og bjartur borðkrókur með glugga á tvo vegu.
Þvottahús er inn af eldhúsi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er inn af forstofu með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu með handlaug, upphengdu salerni, baðkari, sturtu og handklæðaofni.
Tvær geymslur fylgja íbúðinni önnur þeirra er innan íbúðar en hin geymslan er í sameign.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Verð kr. 79.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Fróðengi 14
Staðsetning
Allar 33 myndir
Upp ↑































