fasteignasölur.is
Mánavegur 3
1 af 27

Um eignina

Domusnova  fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einbýlishús með bílskúr á barnvænum stað á Selfossi. Húsið, sem er steypt, er skráð 178,3 fm og þar af er bílskúr 44,5 fm. 
Húsið er hannað af Kjartani Sveinssyni
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur. Gengið úr forstofu inn í þvottahús. Einnig er úr forstofu gengið á gestasalerni með sturtu, upphengdu WC og  gert ráð fyrir handlaug.
Stofa: Harðparket á gólfi.
Eldhús: Stór og rúmgóð, nýleg hvít innrétting, öll tæki nýleg. Harðparket á gólfi.
Borðstofa er í framhaldi af stofu, þar er harðparket á gólfum og gengið út á sólpall með heitum potti.
3 Svefnherbergi:   Gólfefni í herbergjunum er harðparket, líkt og á stofu og eldhúsi. Fataskápar eru í aðalsvefnherbergi. Auðvelt er að bæta við 4 svefnherberginu, á kostnað borðstofu, gluggi og raflagnir eru til staðar.
Baðherbergi: Allt nýleg endurnýjað, innrétting með handlaug, upphengt WC og "walk in" sturta.
Bílskúr: með gluggum, heitu og köldu vatni. Er að hluta einangraður en einungis er eftir að einangra loft. 
Þvottahús: Flísar á gólfi og útgengi í bakgarð.

Garðurinn er gróinn og skjólsamur.
Mulningur í innkeyrslu.
Viðarpallur með heitum potti.
Stutt í skóla og verslanir.


Á undanförnum 2-3 árum hefur verið skipt um allt lagnakerfi hússins, bæði neysluvatn og frárennsli. Ofnakerfi var einnig endurnýjað og er með nýrri hitagrind. 
Rafmang hefur verið endurnýjað og búið er að skipta um járn á hluta þaks og mála allt þakið.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali í S: 662-4422 og eða sverrir@domusnova.is

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. Stimilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.000,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Mánavegur 3

800 Selfoss
TegundEinbýlishúsStærð178,3 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.2
88.800.000 kr.498 þ./m²
Byggingarár1966InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2186784Fasteignamat83.000.000 kr.Brunabótamat85.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmári 4, 2. hæð, 201 KópavogurSími527-1717

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑