fasteignasölur.is
Skyggnisbraut 3
Opið hús 22. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 18

Um eignina

Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með stórum sérafnotareit til suðurs og stæði í bílageymslu
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 88,1 m² bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu lyftuhúsi við Skyggnisbraut 3 í Úlfarsárdal. Húsið er byggt árið 2022 og íbúðinni fylgir stór sérafnotareitur til suðurs með rúmgóðri viðarverönd, sérgeymsla og sérstæði í lokaðri bílageymslu.

-  Stór sérafnotareitur til suðurs með rúmgóðri viðarverönd
-  Sérstæði í lokaðri bílageymslu
-  Bjart og opið alrými
-  Tvö svefnherbergi


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde, löggiltur fasteignasali, í síma 660-5532 eða á tinna@haborg.is.

Íbúðin er skráð 88,1 m² samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 79,7 m² og sérgeymsla 8,4 m². Auk þess fylgir eigninni sérstæði í lokaðri bílageymslu.
Húsfélag: Húsið er 15 íbúða fjölbýli með lyftu og tilheyrir sameiginlegu húsfélagi með nágrannahúsum við Skyggnisbraut, Gæfutjörn og Jarpstjörn. Húsfélagið er í umsjón Eignaumsjónar. Húsfélagsgjöld eru 21.661 kr. á mánuði og innifela hita, húseigendatryggingu, almennan rekstur, rafmagn og ræstingu sameignar ásamt rekstri bílageymslu.

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með fataskápum.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Úr stofu er gengið út á viðarverönd til suðurs.
Eldhúsið er vel skipulagt með fallegri innréttingu í hvítum og dökkum viðartónum, steinborðplötu, innbyggðum eldhústækjum og góðu skápa- og vinnuplássi. Eldhúseyja tengir eldhúsið vel við stofu og borðstofu.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum og með gólfhita. Þar er vönduð innrétting með handlaug, upphengt salerni og sturta með glerskilrúmi. Þvottaaðstaða er einnig inni á baðherberginu.
Gólfefni: Parket er á íbúðinni að baðherbergi undanskildu, en þar eru flísar.
Sérgeymsla, 8,4 m², fylgir íbúðinni.
Bílageymsla: Eigninni fylgir sérstæði í lokaðri bílageymslu.
Sérafnotareitur og verönd: Úr stofu er gengið beint út á stóran sérafnotareit til suðurs með rúmgóðri viðarverönd. 

Sameign og umhverfi: Eignin er vel staðsett í nýlegu og fjölskylduvænu hverfi í Úlfarsárdal. Stutt er í leik- og grunnskóla og fjölbreyttar göngu- og útivistarleiðir. Sundlaug og íþróttaaðstaða eru í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde, löggiltur fasteignasali, í síma 660-5532 eða á
tinna@haborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

Allar 18 myndir

Upp ↑