Um eignina
Miklaborg kynnir:
Björt og vel skipulögð 83 fm, 3ja herbergja íbúð á 1.hæð með yfirbyggðum svölum og 23 fm bílskúr á sunnanverðu Seltjarnarnesi.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með skápum. Þaðan er gengið inní eldhús með snyrtilegri innréttingu. Eldhús er með tengi fyrir uppþvottavél, steinn á borðum og borðkrók. Inn af eldhúsi er þvottahús/búr. Stofan er björt og rúmgóð með útgengt á yfirbyggðar svalir. Hjónaherbergi er rúmgott og með góðu skápaplássi. Baðherbergið er með baðkari, góðri innréttingu og glugga. Gott barnaherbergi með skápum. Sér geymsla á hæðinni. Góður bílskúr með hita og rafmagni og sjálfvrikum hurðaopnara. Stór og falleg lóð.
GÓLFEFNI: Parket er á flestum gólfum að undanskyldu anddyri og baðherbergi en þar eru flísar og málað gólf á þvotthúsi.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í sima 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Miðbraut 19
Staðsetning
Allar 32 myndir
Upp ↑






























