Um eignina
Falleg 4ja herbergja íbúð, á góðum stað í með tilliti til skóla og frístunda, einnig er stutt í Kauptúnið, þar sem ýmsar verslanir og þjónusta er til staðar. Eignin er með þremur svefnherbergjum, opnu rými sem eldhús og stofa mynda fallega heild, baðherbergi og þvottahúsi í íbúð. Einnig fylgir góð geymsla og stæði í bílakjallara. Góð útivistasvæði og stutt í nátturuna.
Vandað hús byggt af ÞG Verk með fallegum innréttingum frá GKS.
Húsið er afar fallegt byggt árið 2021, álklætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulagðar stéttar og malbikuð sameiginleg stæði fyrir framan hús. Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign snyrtileg og til fyrirmyndar. Hjóla- og vagnageymsla er staðsett á jarðhæð hússins
Eigendur leita að stærri eign í hverfinu.
Nánari lýsing,
Anddyri er hlýlegt með fataskáp og parketi á gólfinu, sérsniðin motta er í anddyrisrýminu, til hlífðar parketinu.
Þvottahús er innangengt úr anddyri, rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hillur, skápar og flísar á gólfi.
Gangur með parketi
Stofa/borðstofa er rúmgóð, björt og falleg með eldhúsi innaf. Parket er á gólfi. Útgengi er út á svalir.
Eldhús er með fallegri, hvítri innréttingu, parket er á gólfinu.
Svalir eru í suðurátt, yfirbyggðar, opnanlegum gluggum
Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi innaf, með góðum hillum. Parket á gólfi.
Herbergi II er með fataskáp og parketi á gólfi.
Herbergi III er með fataskáp og parketi á gólfi.
Geymsla er 7,7 fm, í sameiginlegu rými.
Bílastæði fyrir einn bíl í bílakjallara, sem fylgir íbúðinni, síðan eru næg bílastæði utanhús og allt í kring.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson Löggiltur fasteignasali í síma 8673040, tölvupóstur kristjan@trausti.is og Elísabet Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 822-4848, tölvupóstur elisabet@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Maríugata 38
Staðsetning
Allar 31 myndir
Upp ↑





























