fasteignasölur.is
Vallakór 6B
Opið hús 24. sept. kl. 17:30–18:00
1 af 25

Um eignina

Kristján Baldursson hdl og lgf. og Trausti fasteignasala kynna bjarta og fallega tveggja herbergja íbúð á frábærum stað í Kórahverfi. Eigninni fylgir sérstæði í bílakjallara. Þvotta aðstaða í bílakjallara. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Eignin getur verið laus við kaupsamning

Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 69,5 fm. 


Nánar um eignina:
Anddyri með góðum skáp. flísar á gólfi.
Eldhús og stofa mynda sameiginlegt rými.
Eldhús með hvítri innréttingu. Helluborð og háfur. Tengi fyrir uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi. 
Gengið er út á hellulagða afgirta verönd úr eldhúsi/stofu
Hjónaherbergi með stórum og góðum skáp. Parket á gólfi.
Rúmgott baðherbergi með glugga. Snyrtileg innrétting. Tengi fyrir þvottavél. Walk-in sturta. Upphengt salerni. Handklæðaofn. Flísar í hólf og gólf.
Sérgeymsla í sameign. 
Vagna- og hjólageymsla í sameign.
Eigninni fylgir sérstæði í bílakjallara.

Um er að ræða glæsilega og bjarta íbúð í þessu skemmtilega hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra nauðsynlega þjónustu. Tilvalin fyrstu kaup.

Nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson Löggiltur fasteignasali í síma 8673040, tölvupóstur kristjan@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Vallakór 6B

203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð69,5 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
64.900.000 kr.934 þ./m²
Byggingarár2018InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2354730Fasteignamat64.200.000 kr.Brunabótamat57.315.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑