Um eignina
Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna í einkasölu: Mýrargötu 35 (íbúð 209) - Virkilega fallega og virkilega vel skipulagða 4 herbergja íbúð með suðursvölum.
Bókaðu skoðun! Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Við Mýrargötu 35 er nú til sölu 84,4 m², 4 herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi.
Íbúðin er björt, einstaklega vel skipulögð, með þremur svefnherbergjum og suðursvölum sem snúa út í garð.
Miðpunktur íbúðarinnar er björt stofa og opið eldhús með vandaðri AXIS-innréttingu, ljósri Quartz-borðplötu frá Granítsmiðjunni, innbyggðum tækjum og vaskur í eldhúsi er undirlímdur með bronz lituðum vatnskrana. Innbyggður ísskápur með frysti. Spanhelluborð og Combi-bakaraofn.
Gólfhiti í allri íbúðinni með Danfoss-stýribúnaði.
Skipulag er eftirfarandi: forstofa með skápum, eldhús og stofa í opnu rými, hjónaherbergi með miklu skápaplássi, tvö barnaherbergi (bæði með skápum), baðherbergi og geymsla.
Baðherbergið er með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni - Harðparket á gólfum, flísar á baðherbergi.
íbúðin er 84,4 m² og þar af geymsla 8,5 m².
Hér er um að ræða nýlega og vel skipulagða fjölskylduíbúð með sérstaklega miklu skápaplássi á eftirsóttum stað. Örstutt í veitingastaði, bakarí, verslanir, þjónustu og allt það sem Vesturbærinn hefur upp á að bjóða.
Bókaðu skoðun! Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Mýrargata 35 (209)
Staðsetning
Allar 26 myndir
Upp ↑
























