fasteignasölur.is
Smáratún 9
1 af 48

Um eignina

Kasa fasteignir 461-2010.

Smáratún 9 - 606 Svalbarðseyri. Rúmgóð og vel skipulögð 6 herbergja 231,8 fm hæð með innbyggðum bílskúr í þríbýlishúsi á Svalbarðseyri.

Eignin skiptist í forstofu, hol. eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, gestasalerni, 4 svefnherbergi, þvottahús og bílskúr á efrihæð ásamt rúmgóðu herbergi og geymslu á jarðhæð.

Forstofa:
Er með flísum á gólfi og handklæðaofni.
Hol: Er með parketi á gólfum.
Stofa, borðstofa og sjónvarpshol: Er með parketi á gólfum, rúmgott rými með stórum gluggum. Gengið er út á svalir frá stofu.
Eldhús: Er með eldri viðarlitaðri innréttingu með ágætu skúffu og skápa plássi. Flísar á milli skápa. Pláss er fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Bakaraofn er í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Eru 4 á hæðinni, öll með parketi á gólfum og þrjú þeirra með lausum fataskápum.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, innrétting með skápum, vegghengdur vaskur, sturtuklefi, baðkar og salerni. 
Gestasalerni: Er með lítilli vaska innréttingu, klósetti og flísum á gólfi.
Þvottahús: Er með flísum á gólfi, innrétting með góðu bekk plássi. Vaskur í borðplötu. 
Bílskúr: er með lökkuðu gólfi og tveim bílskúrshurðum, hvorugar eru rafdrifnar.
Úr þvottahúsi er hringstigi niður í rúmgott herbergi, þar er parket á gólfum. Inn af herberginu er lítil geymsla með hillum. Einnig er hurð út í garð úr herberginu.

- Frábært útsýni er úr eigninni yfir fjörðinn.
- Þrjár íbúðir eru í húsinu, allar með sér rafmagnsmæli.
- Heitur pottur ( skel ) er fyrir framan hús og timbur skjólveggir í kringum hann.
- Stutt í leik og grunnskóla.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Smáratún 9

606 Akureyri (dreifbýli)
TegundFjölbýlishúsStærð231,8 m²Herbergi6Svefnherb.5Baðherb.2
89.900.000 kr.388 þ./m²
Byggingarár1981InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2160521Fasteignamat50.400.000 kr.Brunabótamat117.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangRáðhústorgi 1, 600 AkureyriSími461-2010

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 48 myndir

Upp ↑