fasteignasölur.is
Elliðabraut 20
Opið hús 22. sept. kl. 17:30–18:00
1 af 19

Um eignina

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Elliðabraut 20, 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 00-01, fastanúmer 250-7885 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Elliðabraut 20 er skráð sem hér segir hjá FMR: birt stærð 107,2 fm. Íbúð 99,1 fm. Geymsla 8,1 fm.

Um er að ræða bjarta og fallega 4 herbergja íbúð á jarðhæð með palli í lyftuhúsi að Elliðabraut 20. Húsið er byggt af Mótex árið 2020, fjöldi íbúða í húsinu eru 20. Mikið er lagt upp úr hljóðvist og loftgæði. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Stór pallur sem snýr í suð/vestur. Norðlingaholt er í nágrenni við Rauðhóla, Rauðavatn, Heiðmörk og Elliðavatn en þar eru margar góðar gönguleiðir og stutt í náttúruna. Sameign er rúmgóð, snyrtileg og björt með flísum í anddyri, teppi á stigagöngum, rafmagnshurðaopnara og myndavéladyrasíma. Allir skáparnir eru upp í loft og eru frá Axis. Innfelld lýsing frá Rafkaup er í alrými og hjónaherbergi. Bónus, apótek, Norðlingaskóli og leikskólinn Rauðhóll eru í göngufæri. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Stéttin fyrir framan húsið er hellulögð með snjóbræðslu. Tvö rafmagnstæði eru fyrir utan. Búið er að leggja rafmagn fyrir hleðslustöð í bílakjallara. Eignin getur verið laus fljótlega

Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupóstur bjarklind@borgir.is.

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Með fjórföldum fataskáp með setbekk , vínylparketi á gólfi 
Gangur/Hol: Rúmgóður gangur, með vínylparketi á gólfi
Hjónaherbergi: Með sexföldum fataskáp, með vínylparketi á gólfi 
Barnaherbergi I: Með tvöföldum fataskáp, með vínylparketi á gólfi
Barnaherbergi II: Með tvöföldum fataskáp, með vínylparketi á gólfi
Eldhús: Með rúmgóðri innréttingu,bakarofn í vinnuhæð og vínylparketi á gólfi 
Stofa: Með gólfsíðum gluggum, vínylparketi á gólfi og útgengi út á verönd sem snýr í suð/vestur
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni, speglaskápur og vaskaskápur 
Þvottahús: Innaf baðherbegi með skápum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Bætt hefur verið við skúffum í fataskápanna. 

Í kjallara eru einkageymslur fyrir hverja íbúð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sérstakt loftræstikerfi er í íbúðinni. Kerfið hefur loftskipti með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu og soga loft út úr baði/þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki er þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar. Öryggiskerfi (myndavélar) er í sameign og í bílakjallara. Úr bílakjallara er greiður aðgangur þar sem bæði er inn- og útkeyrsludyr. Stæðið sem fylgir þessari eign er númer B53. Djúpruslagámar eru í jaðri lóðar á tveimur stöðum með flokkun. 

Umhverfi: Umhverfis húsið eru leiktæki, Björnslundur og einnig lítil tjörn sem vinsælt er að gefa fuglunum, margar gönguleiðir þ.a.s í kringum Elliðavatn og Rauðavatn. Vinsælt hefur verið á veturna að skauta á Rauðavatni. 

 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.

Elliðabraut 20

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð107,2 m²Herbergi3Svefnherb.3Baðherb.1
95.900.000 kr.895 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2507885Fasteignamat76.200.000 kr.Brunabótamat84.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipholt 50c, 105 ReykjavíkSími588-2030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑