fasteignasölur.is
Þrúðvangur 18
1 af 34

Um eignina

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028.

ATVINNUHÚSNÆÐI VIÐ ÞRÚÐVANG NR 18 Á HELLU.
Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1970 og er klætt að utanverðu með stálklæðningu.  Húsinu er skipt upp í nokkur rými með léttum timburveggjum sem auðvelt er að breyta.  Linoleumdúkur er á gólfum.  Húsið telur; anddyri, tvo ganga, eldhús með góðri innréttingu og uppþvottavél, þaðan er hurð út.  Salerni, stórt opið rými og fimm herbergi.  Eitt þeirra er með sérinngangi.  Við húsið er hellulögð gangstétt, malbikað bifreiðastæði og gróinn garður.  Á árunum 2018–2019 var unnið að breytingum og endurbótum á húsinu með það að markmiði að breyta því úr atvinnu- og skrifstofuhúsnæði í leikskóladeild fyrir yngstu börnin. Framkvæmdirnar náðu m.a. til smíða innréttinga og milliveggja, pípulagna, raflagna, loftræstingar, dúklagnar, málunar, glugga og hurða, frárennslis, innréttinga og girðinga. Járn á þaki var endurnýjað 2019.

Kaupendur greiða enging umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang: gudmundur@fannberg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Þrúðvangur 18

850 Hella
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð159,6 m²Herbergi6Baðherb.1
Tilboð
Byggingarár1970InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2196216Fasteignamat22.050.000 kr.Brunabótamat90.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÞrúðvangi 18, 850 HellaSími487-5028

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑