fasteignasölur.is
Óðinsgata 8A
1 af 23

Um eignina

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu algjörlega endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu húsi með 3 íbúðum við Óðinsgötu 8a í Reykjavík. Íbúðin er skráð 50,6 fermetrar að stærð og auk þess fylgir geymsla við inngang sem er ca 3 fermetra. Seljandi eignarinnar er að gera nýjan eignaskiptasamning þar af lútandi.

Eignin var nánast öll endurnýjuð árið 2025:
- Skipt um klóaklagnir undir húsi og að lóðarmörkum
- Skipt um raflagnir og töflur og nýtt rafmagnsinntak
- Skipt um ofnalagnir og lagðar gólfhitalagnir í kjallara og á 1. hæð
- Skipt um neysluvatnslagnir og ný inntök fyrir heitt og kalt vatn
- Þak og kvistir endurnýjaðir, sett fallegt þakefni á húsið, þakrennur og niðurföll
- Gler og gluggar endurnýjaðir.
- Húsið múrviðgert og málað að utan


Hið innra var íbúðin algjörlega endurnýjuð hið innra:
- Skipulagi breytt
- Gólfefni, innréttingar, baðherbergi og eldhús endurnýjuð
- Nýjar gólfhitalagnir.


Lýsing eignar:
1. hæð hússins, sem er með sameiginlegum inngangi með rishæð, er 2ja herbergja íbúð, sem er skráð 50,6 fermetrar að stærð auk sérgeymslu á hæðinni.
Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi auk sérgeymslu innaf sameiginlegri forstofu á hæðinni.
Ný gegnheil furugólfborð eru á stofu, eldhúsi og svefnherbergi. Ný HTH innrétting er í eldhúsi með Bosch tækjum og innbyggðri Siemens uppþvottavél. Baðherbergi er stórt, bæði með glugga og útgengi á svalir til vesturs. Stór flísalögð sturta með sturtugleri og innbyggðum tækjum í vegg, innrétting, vegghengt wc. og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergið er með fataslá.

Húsið er byggt úr holsteini árið 1920 og er í góðu ástandi hið ytra. Allt gler og gluggar var endurnýjað árið 2025 og eru gluggar með þreföldu gleri. Þak var endurnýjað eins og þurfti og klætt með áli auk þess sem skipt var um þakrennur og niðurföll.  

Lóðin er 480 fermetrar að stærð, sameiginleg með húsinu nr. 8 við Óðinsgötu og er fullfrágengin. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð miðsvæðis í borginni með útsýni yfir Óðinstorg.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

Óðinsgata 8A

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundHæðStærð50,6 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
Tilboð
Byggingarár1920InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2005797Fasteignamat56.150.000 kr.Brunabótamat36.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÓðinsgata 4, 101 ReykjavíkSími570-4500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑