Um eignina
Móeiður og Miklaborg kynna: Einstakt tækifæri til að eignast einbýlishús og stóra lóð í algerum sérflokki. Með óskertu útsýni og sólina allan daginn, Dýjagata 16 er eign sem býður upp á endalausa möguleika. Húsið sjálft er 396,7 fm og lóðin 1.594 fm með byggingarrétt fyrir 880 fm hús.
***Seljandi er opinn fyrir uppítöku á öðrum eignum***
Bókaðu skoðun! Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899 8278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897 0634 eða throstur@miklaborg.is
Nánari lýsing
Við Dýjagötu í Urriðaholti er komið í sölu glæsilegt 396,7 fm einbýlishús á 1.594 fm lóð, hannað af Kára Eiríkssyni arkitekt. Eignin stendur í fremstu götu við Urriðavatn og nýtur einstaks útsýnis yfir vatnið og náttúruna í kring — staðsetning sem á sér fáa líka á höfuðborgarsvæðinu.
Húsið er mjög vandað með; hnotuinnréttingar, náttúrustein frá Rein, gólfhita um alla eign og mikla lofthæð með stórum gluggum. Björt stofa með stórum innbyggðum arni og rúmgóðar svalir í suður og suð-austur. Borðstofa með útgengt á svalir í suð-vestur. Á efri hæð eru síðan þaksvalir með stórbrotnu útsýni. Þrefaldur 60 fm bílskúr og sjálfstæð aukaíbúð — auk þess sem byggingarréttur er fyrir allt að 880 fm.
Staðsetningin er í senn kyrrlát og miðsvæðis: neðst í götu við óbyggt svæði og Urriðavatn. Urriðaholtsskóli, sem starfar bæði á leik- og grunnskólastigi, er í göngufæri, ásamt verslunum í næsta nágrenni. Draumastaður fyrir golfáhugafólk — þrír golfklúbbar, Oddur, GSE og GKG, allir í innan við 10 mínútna fjarlægð.
Náttúran í Urriðaholti umlykur hverfið á þrenna vegu; Vífilsstaðahraun að norðanverðu, Heiðmörk til austurs og Hádegisholt og Urriðavatn í suður og suðvestur.
Helstu kostir:
- 396,7 fm einbýli
- 1.594 fm lóð
- 60 fm þrefaldur bílskúr
- Þaksvalir og nokkrar svalir
- Aukaíbúð
- Byggingarréttur fyrir allt að 880 fm
- Hnotuinnréttingar
- Steinn frá Rein í eldhúsi
- Gólfhiti allsstaðar
- Mikil lofthæð og mjög stórir gluggar
- Arinn í stofu
- Endalausir möguleikar
***Seljandi er opinn fyrir uppítöku á öðrum eignum***
Sjón er sögu ríkari!
Bókaðu skoðun! Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899 8278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897 0634 eða throstur@miklaborg.is
Dýjagata 16
Staðsetning
Allar 44 myndir
Upp ↑










































