fasteignasölur.is
Burknaberg 12
1 af 75

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir fallegt 7 herbergja einbýlishús vel staðsett í Setbergshverfinu í Hafnarfirði. Húsið er skráð 256,6 fm en þar af er tvöfaldur bílskúr ca 45 fm. Til viðbótar er óskráð rými ca 80 fm á neðri hæð hússins. Samtals stærð því um ca 336,6 fm. Fallegt útsýni. Rúmgóð verönd í suðurátt. Rúmgott hellulagt bílaplan. 
Frábær staðsetning þessu fjölskylduvæna hverfi, göngufæri við skóla og leikskóla. Stutt í verslun og út á stofnbraut.    

Eignin skiptist þannig:
Efri hæð:
Flísalögð forstofa, gestasalerni inn af forstofu. Þvottahús þar sem útgengt er í garð á bakvið hús. Hol. Björt stofa og borðstofa með aukinni lofthæð. Fallegt útsýni. Sjónvarpshol. Eldhús með borðkrók. Hjónaherbergi með fataskáp. Þrjú svefnherbergi. Baðherbergi með handlaug, salerni, baðkari og sturtuklefa. Gluggi á baðherbergi. Dúkur á gólfi. 

Neðri hæð: Gengið er niður hringstiga frá forstofu efrihæðar. Rúmgott hol. Baðherbergi með handlaug, salerni og sturtuklefa. Geymsla með glugga. Tvöfaldur rúmgóður bílskúr sem er innangengt í frá holi. Tvö óvenju rúmgóð herbergi á neðri hæð ásamt geymslu sem er utan fm tölu eignarinnar. Búið er að setja upp eldhúsinnréttingu í öðru herberginu. Mögulegt væri að hafa sér íbúð þar sem útgengt er frá holi. 

Þetta er rúmgott og og vel staðsett fjölskylduhús sem býður upp á mikla möguleika.

Einstaka myndir hafa verið unnar með gervigreind. 


Nánari upplýsingar veitir:
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is 


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Burknaberg 12

221 Hafnarfjörður
TegundEinbýlishúsStærð336,6 m²Herbergi7Svefnherb.6Baðherb.3
179.900.000 kr.534 þ./m²
Byggingarár1989InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2074201Fasteignamat168.550.000 kr.Brunabótamat138.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 75 myndir

Upp ↑