fasteignasölur.is
Stefnisvogur 3 - Íb. 310
1 af 32

Um eignina

TORG FASTEIGNASALA KYNNIR TIL SÖLU: Vel skipulögð og vönduð, 128,0 fm, fimm herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í Vogabyggð, 104 Rvk. Íbúðin skilast fullbúin með öllum gólfefnum, gólfhita og eru innréttingar sérsmíðaðar. Vönduð heimilistæki, innfelld tæki, ísskápur, frystir og uppþvottavél. Stæði nr. B17 í bílakjallara ásamt tveimur sér geymslu nr. 0029 (18,5 fm) og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í sameign. Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 690 4966 eða matthildur@fstorg.is

Nánari lýsing:

Eignin er íbúð á þriðju og efstu hæð og er fullbúin, fimm herbergja og 120,1 fm. Inngangur af svölum. 
Komið er inn í anddyri með góðu skápaplássi.
Stofa er björt og með útgengt á svölum til suðurs.
Eldhús er í alrými með stofu og er með grárri innréttingu og ljósri borðplötu. Öll tæki eru frá Ormsson, bakaraofn í vinnuhæð og innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Baðherbergi er flísalagt að hluta til í hólf og gólf með gráum flísum og með grárri skápaeiningu undir handlaug og efri speglaskáp. Sturta með skilrúmi úr gleri. Salerni er vegghengt.
Þvottahús er innan íbúðar, með vaski.
Bílastæði (B17) í bílakjallara ásamt geymslu nr. 0029 (18,5 fm)
Parket er á allri íbúð fyrir utan baðherbergi og þvottahúsi, þar eru flísar.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
 

Stefnisvogur 3 - Íb. 310

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð128 m²Herbergi4Svefnherb.4Baðherb.1
120.900.000 kr.945 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2540632Fasteignamat92.300.000 kr.Brunabótamat87.570.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑