fasteignasölur.is
Hraunholt 2
1 af 40

Um eignina

Kasa fasteignir 461-2010.

Hraunholt 2 - Gott einbýlishús samtals 171.7 fm. Búið er að gera auka íbúð með sér inngangi í hluta hússins, en auðvelt er að opna á milli íbúða. Á lóð eru tveir skúrar, gróðurhús og tvö bílastæði.

Stærri íbúðin skiptist í forstofu, borðstofu, eldhús, búr, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. 
Minni íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús og borðstofu í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi

Stærri íbúð:
Forstofa
er með parketi á gólfi. Þar er opið fatahengi og skóskápur.
Borðstofa er í rúmgóðu og björtu rými með parketi á gólfum.
Eldhús er með parketi á gólfi. Þar er nokkuð rúmgóð hvít innrétting með flísum á milli skápa og plássi fyrir uppþvottavél. 
Búr með eldri innréttingu er við hliðina á eldhúsi.
Stofa er með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á timburverönd sem snýr til suðurs. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfum og góður fataskápur er í hjónaherbergi.  
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð innrétting, sturta, salerni, handklæðaofn og hiti í gólfum. Á baðherbergi er einnig opnanlegur gluggi.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Þar er hvít innrétting með góðu skápaplássi og plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Á lóðinni er geymsluskúr og gróðurhús.

Minni íbúð:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsinu er hvít innrétting með plássi fyrir þvottavél.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er hvít innrétting, sturta með gler-skilrúmi og upphengt salerni.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og lausum, hvítum fataskáp. 
Fyrir utan íbúðina er lítill pallur og góður geymsluskúr með hita og rafmagni.

- Bílastæði er við báðar íbúðirnar.
- Rólegt og gott hverfi. 
- Auka íbúð -góðar leigutekjur.

Nánari upplýsingar Kasa fasteignir í síma 461-2010.

Skoðunarskylda: 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.
 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Kasa fasteignir
109.900.000 kr.640 þ./m²
+131,4% á 9 árum
27. febrúar 2018Þinglýstur kaupsamningur
47.500.000 kr.277 þ./m²
+106,5% á 4 árum
26. nóvember 2013Fyrsta sala
23.000.000 kr.134 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hraunholt 2

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundEinbýlishúsStærð171,7 m²Herbergi4Svefnherb.4Baðherb.2
109.900.000 kr.640 þ./m²
Byggingarár1975InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2147779Fasteignamat90.200.000 kr.Brunabótamat83.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangRáðhústorgi 1, 600 AkureyriSími461-2010

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑