fasteignasölur.is
Daltún 34
1 af 52

Um eignina

**SÝND Í EINKASKOÐUNUM MIÐVIKUDAGINN 23.09.2026- BÓKIÐ SKOÐUN**Fallegt og frábærlega vel staðsett parhús með innbyggðum bílskúr og möguleika á aukaíbúð við Daltún 34 Kópavogi. Um er að ræða eign sem er skráð skv HMS 238,8fm og þar af er bílskúr 43,2fm. Svefnherbergi eru alls 6 talsins, 4 á efstu hæð og 2 á jarðhæð. Baðherbergi eru tvö talsins, á miðhæð og efstu hæð, en möguleiki er á að gera baðherbergi á jarðhæð. Húsið er á 3 hæðum og möguleiki er á að útbúa aukaíbúð á jarðhæð með sér inngangi . Aðkoman er falleg og húsið lítur vel út og er með glæsilegum grónum garði, verönd með nýlegri gufu og heitum potti og hellulögðu bílaplani. Frábær staðsetning með útivistarparadísina Fossvogsdalinn í næsta nágrenni. BÓKIÐ EINKASKOÐUN: Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali sími 899-3090 eða elina@valholl.is
Nánari lýsing:

Aðalhæð: Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp. 
Baðherbergi: innaf forstofu er fallegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með góðri sturtu, upphengdu salerni, innréttingu og opnanlegum glugga.
Eldhús: eldhúsið er mjög rúmgott og bjart þar sem pláss er fyrir stórt eldhúsborð. Innréttingin er með góðu skápaplássi hvít/eik og með kvartstein á borðum. Uppþvottavél og ísskápur eru innfelld, spanhelluborð og tvöfaldur ofn er í vinnuhæð. Fallegt viðarparket á gólfi. 
Þvottahús: innaf eldhúsi er þvottahús með flísum á gólfi, glugga, snúrum og skáp.
Stofur: stofa og borðstofa eru samliggjandi með eikarparketi á gólfi og frá stofum er útgengt út í garð. Nýr gluggi í stofu 2026
Efri hæð: frá holi er gengið uppá efri hæð hússins sem skiptist í 4 svefnherbergi og baðherbergi. Þakgluggar eru nýir 2026.
Svefnherbergin eru 4 og öll með viðarparketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi: baðherbergið er með glugga, bjart og fallegt flísalagt er í hólf og gólf, sturtuklefi er vandaður, upphengt salerni og handklæðaofn. Innréttingin er hvít með límtrésborðplötu.
Neðri hæð: neðsta hæðin skiptist í rúmgott svefnherbergi með glugga og stórt og gott svefnherbergi eða fjölskyldurými þar sem stúka mætti af eldhúsaðstöðu og bað fyrir þá sem þurfa auka íbúðarrými en þaðan er útgengt út á bílaplan. Rúmgóður bílskúr með flísum á gólfi, vaski og lítilli innréttingu er einnig á jarðhæð og er innangengt í hann frá holi.  Gott geymslurými mætti stúka af innaf bílskúr. Neðsta hæðin hefur verið notuð sem auka íbúð hjá fyrri eigendum og möguleiki er því á að breyta hæðinni aftur í sér íbúðarými með sérinngangi. 
Tréverk í þakkanti hússins var endurnýjað 2026 ásamt stofuglugga og þakgluggum á efstu hæð hússins.

Þetta er rúmgott og fallegt fjölskylduhús með góðum garði á frábærum stað í Kópavoginum þar sem stutt er í alla þjónustu og fallega náttúru í Fossvogsdalnum. Allar nánari upplýsingar veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valholl.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Valhöll
174.900.000 kr.732 þ./m²
+82,2% á 6 árum
13. nóvember 2020Fyrsta sala
96.000.000 kr.402 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Daltún 34

200 Kópavogur
TegundRað-/parhúsStærð238,8 m²Herbergi7Svefnherb.6Baðherb.2
174.900.000 kr.732 þ./m²
Byggingarár1982InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2059483Fasteignamat135.350.000 kr.Brunabótamat116.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 52 myndir

Upp ↑