fasteignasölur.is
Háagerði 12
NýttOpið hús 21. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 41

Um eignina

Miklaborg kynnir: Einbýlishús á frábærum stað í Gerðunum sem hefur verið endurnýjað á einstaklega vandaðan og smekklegan hátt. Húsið er á tveimur hæðum auk bílskúrs. Endurhannaður garður með stórum (120 fm.) viðhaldsfríum palli úr lerki. Heitur pottur, útisturta og útilýsing. Útiskyggni með tengingu fyrir hitara. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, eldhús, stofur og baðherbergi, auk herbergis með snyrtingu sem hefur verið innréttað í hluta bílskúrs. Grunnflötur neðri hæðar er 86,2 fm., rishæðin er skráð 39,4 fm. en gólfflötur hennar er mun meiri, þar sem súðarfermetrar eru ómældir. Húsið er í rólegum botnlanga, nálægt leik- og grunnskólum.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.


Neðri hæð: Komið í flísalagt anddyri með fatahengi og innbyggðum sérsmíðuðum skúffum. Veggþil í forstofu er sérsmíðað. Inn af anddyri er þvottahús. Borðstofa og stofa með eikarparketi. Sérsmíðað eldhús frá 2013, gaseldavél, flísar og hiti í gólfi, góð borðaðstaða.  Baðherbegi var endurnýjað 2018 og er með upphengdu salerni, "walk in " sturtu og hita í gólfi. Gluggi er á baðherbergi og marmaraflísar á veggjum. Hjónaherbergi er flísalagt.

Efri hæð: Þar eru þrjú svefnherbergi. Tvö eru ágætlega rúmgóð, þriðja er lítið. Hillur í holi og litla herbergi eru sérsmíðaðar og fylgja með. Sérsmíðaðar innbyggðar skúffur eru í öðru stærra herbergi. Gólfefni efri hæðar eru flísar. Stigahandrið er sérsmíðað.  

Bílskúr: Hluti hans er innréttaður sem herbergi, með snyrtingu. Hinn hluti bílskúrs er nýttur sem geymsla.

Bílaplan: Var hellulagt árið 2017, nýjar tröppur að útidyrum sem eru færar fötluðum. Snjóbræðsla er í bílaplani og meðfram bílskúr.

Lóð: Lóðin var endurhönnuð árið 2018. Þá var settur stór pallur úr lerki með lýsingu, heitum potti frá Trefjum og útisturtu. Á sama tíma var jarðvegur endurnýjaðar á allri lóðinni.

2018 var sett nýtt þak á húsið, þakrennur og niðurföll, steyptur strompur fjarlægður og steyptar þakrennur sagaðar af. Nýir gluggar settir í hluta efri hæðar. Árið 2024 voru nýir gluggar settir í suður- og austurhlið jarðhæðar. 7 kW hleðslustöð er fyrir rafbíl.

Þetta er hús sem hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. á smekklegan og vandaðan hátt. Til er yfirlitsblað yfir framkvæmdir.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.


Háagerði 12

108 Reykjavík · Austurbær
TegundEinbýlishúsStærð164,3 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.1
163.900.000 kr.998 þ./m²
Byggingarár1957InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2035013Fasteignamat127.750.000 kr.Brunabótamat77.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑