1 af 24
Um eignina
Fasteignasalan Byggð 464-9955
Hofsbót 2 – 204
Um er að ræða nýja og glæsilega 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi að Hofsbót 2 í miðbæ Akureyrar. Eignin skiptist í forstofu, rúmgott alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi þar sem annað er inn af hjónaherbergi og geymslu innan íbúðar. Skráð stærð eignarinnar skv. HMS er 120,3 fm.
Forstofa er björt og opin með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Geymsla innan íbúðar er skráð 2,3 fm. og þar er parket á gólfi.
Baðherbergin eru tvö. Bæði eru flísalögð í hólf og gólf með ljósum innréttingum. Á hvoru baðherbergi er walk-in sturta og upphengt klósett.
Svefnherbergin eru tvö. Parket á gólfi og góðir fataskápar. Inn af hjónaherbergi er gengið inn á baðherbergi.
Eldhús er opið inn í rúmgott alrými og er með vönduðum innréttingum frá HTH. Innbyggð eldhústæki eru frá AEG. Í eldhúsi er eyja með helluborði og háfur. Parket á gólfi.
Stofa er opin og rúmgóð. Úr stofu er gengið út á svalir til austurs.
Annað:
-Loftskiptikerfi
-Lyfta í húsinu
-Til vesturs eru sameiginlegar svalir
-Hjólageymsla í sameign
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Hofsbót 2 - 204
600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð120,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
89.900.000 kr.747 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2529607Fasteignamat81.450.000 kr.Brunabótamat76.100.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 24 myndir
Upp ↑






















