Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og nýlegt 106,7 m2, raðhús á einni hæð við Liljugötu 9 í Mosfellsbæ. Um er að ræða fullbúið og vel skipulagt raðhús byggt 2023.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, forstofu, geymslu, eldhús og stofu. Fallegar innréttingar frá HTH, harðparket á gólfum. Gólfhiti er í öllu húsinu, innfelld lýsing í forstofu, stofu, eldhúsi og hjónaherbergi, Free@Home hússtjórnarkerfi og loftskiptakerfi frá Íshúsinu ehf.
Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslu. Afgirt timburverönd í suðurátt. Undir timburverönd eru ídráttarlagnir fyrir heitan pott. Kaldur geymsluskúr er í bakgarði.
Frábær staðsetning, stutt frá Helgafellsskóla, leikskóla og næstu strætóstoppistöð. Stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Eldhús er með fallegri innréttingu og færanlegri eyju. Í innréttingu er spanhelluborð, vifta, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. LED lýsing er undir efri skápum. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar og skápar í efri hluta innréttingar. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðinnréttingu, handklæðaofn, vegghengdu salerni. Sturta er flísalögð og með sturtuskilrúmi og hurð úr hertu gleri. Innbyggð blöndunartæki eru í sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á hellulagða verönd og út í bakgarð.
Svefnherberbergi nr. 2 er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofan er björt með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út afgirta timburverönd.
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Geymsla er inn af forstofu með flísum á gólfi.
Húsið er byggt af Byggingafélaginu Bakka ehf. Húsið staðsteypt, einangrað og klætt að utan með álklæðningu frá Áltak ehf.
Verð kr. 104.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Liljugata 9
Staðsetning
Allar 30 myndir
Upp ↑




























