fasteignasölur.is
Furuvellir 1
Opið hús 24. sept. kl. 17:30–18:00
1 af 47

Um eignina

Elka lgf. s. 863-8813 og TORG fasteignasala kynna bjart og einstaklega vel skipulagt 208,4 m² einbýlishús á einni hæð með rúmgóðum bílskúr við Furuvelli 1 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist í 168,8 m² íbúðarhús og 39,6 m² innbyggðan bílskúr. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, rúmgóð stofa og borðstofa í björtu alrými, eldhús, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús og geymsla. Húsið stendur á 818,1 m² lóð og er góð, hellulögð verönd við húsið.  Húsið er einstaklega bjart með mikilli lofthæð. Skipulagið hentar fjölskyldufólki sérstaklega vel og öll helstu rými eru rúmgóð.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfanginu elka@fstorg.is.

Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Inn af forstofu er gestasalerni með upphengdu salerni og innréttingu.
Sjónvarpsholið er rúmgott og tengir svefnherbergisálmu hússins við stofu og eldhús.
Stofa og borðstofa eru í einstaklega björtu og rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð. Útgengt er úr stofunni á stóra hellulagða verönd.
Eldhúsið er opið inn í borðstofu og stofu og er með fallegri viðarinnréttingu, dökkri borðplötu og góðu vinnu- og skápaplássi. Innbyggður ofn er í vinnuhæð og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru fjögur, öll björt með parketi á gólfum. Hjónaherbergið er rúmgott og með fataherbergi. Barnaherbergin eru einnig rúmgóð.
Baðherbergið er rúmgott og flísalagt, með innréttingu, baðkari og góðri walk-in sturtu með glerveggjum.
Þvottahúsið er mjög rúmgott og snyrtilegt með góðri hvítri innréttingu, vinnuborði, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Útgengt er úr þvottahúsinu útá verönd/garð.  Geymsluloft er yfir þvottahúsinu.
Fallegt viðarparket er á meginhluta íbúðarinnar en flísar eru á forstofu, baðherbergi, gestasalerni og þvottahúsi. Innfelld lýsing er víða í loftum og mikil lofthæð í alrými gefur húsinu einstaklega bjarta og rúmgóða ásýnd.
Bílskúrinn er skráður 39,6 m². Hann er rúmgóður, með góðri lofthæð, gluggum, geymslulofti og gönguhurð út á verönd.
Lóðin er 818,1 m². Við húsið er stór og snyrtileg hellulögð verönd. Einnig er góð grasflöt og afgirtur garður. Rúmgóð innkeyrsla er fyrir framan húsið.

Virkilega bjart, fallegt og einstaklega vel skipulagt fjölskylduhús á einni hæð á góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Furuvellir 1

221 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð208,4 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
149.900.000 kr.719 þ./m²
Byggingarár2004InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2269402Fasteignamat141.900.000 kr.Brunabótamat104.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 47 myndir

Upp ↑