fasteignasölur.is
Hæðarhvarf 8
1 af 5

Um eignina

Glæsilegt og sérlega vel staðsett 247 fm einbýlishús með útsýni í nýju hverfi í Kópavogi. Lóðin er 619,2 fm suðurlóð.  

Húsið selst tilbúið til innréttingar og frágengið að utan með grófjafnaðri lóð.  Ath. kaupendur hafa val um breytingar á innra skipulagi og búnaði.


Húsið verður á tveimur hæðum þar sem komið er inn á efri hæð frá götu. Hæðin skiptist í anddyri, bílageymslu, forstofuherbergi, baðherbergi / snyrtingu, hjónaherbergi með fataherbergi og innangengu baðherbergi. Auk þess er herbergi og opin setustofa inn af gangi. Gengið er út á suðursvalir um rennihurðar frá báðum suðurherbergjunum og setustofu. Stigi er niður á neðri hæð. Á neðri hæð er stofa með opnu eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og líkamsræktar aðstöðu. Einnig er innangengt í húsið beint á þessa hæð um hurð og anddyri á vestur hlið hússins. Þrjár rennihurðar eru á suðurhlið stofu og liggja að verönd undir svölum efri hæðar. Svalir eru framan við setustofu á efri hæð, hjónaherbergi og suðurherbergi. 

Stærðir: neðri hæð 110,5 fm og efri hæð 136,5 fm, samtals er húsið 247 fm. Auk þess eru u.þ.b. 27 fm óskráð rými sem auðvelt verður að bæta við og yrðu húsið þá samtals 274 fm.

Um er að ræða íbúðarhús sem er með forsteyptum einingum með einangrun og steyptri veðurkápu. Gert er ráð fyrir sléttu yfirborði en hægt er að velja steinaða áferð. Gluggar verða gólfsíðir á suðurhlið hússins. Húsið selst og afhendist á byggingarstigi 2 - 3, þ.e. tæplega tilbúið til innréttingar (eftir að setja upp létta milliveggi. Kaupendur hafa val um breytingar á innra skipulagi m.a. hægt að hafa stofu og eldhús á efri hæð. Gert er ráð fyrir að hússtjórnarkerfi verði í húsinu. Hitalagnir verða í gólfi og raflagnir (óídregið), verða komnar í forsteyptum einingum. Lagt verður fyrir loftaskiptakerfi. Lóðin afhendist grófjöfnuð (u.þ.b. 20 cm neðan endanlegra lóðarhæðar) og verður skipt um jarðveg framan við aðalinngang og bílskúr.

Traustur byggingaraðili. 

Nánari upplýsingar veita: Geir Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, geir@husasalan.is s: 655-9000 og Jón Örn Kristinsson, löggiltur fasteignasali, jon@husasalan.is; s: 898-4588.  

Hæðarhvarf 8

203 Kópavogur
TegundJörð/LóðStærð0 m²Herbergi5Svefnherb.3
175.000.000 kr.
FasteignanúmerF2536808Fasteignamat13.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúla 33, 108 ReykjavíkSími537-9000

Allar 5 myndir

Upp ↑