fasteignasölur.is
Ísleifsbúð 22
1 af 40

Um eignina

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt 5 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr við Ísleifsbúð 22, 815 Þorlákshöfn.
Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 193,1 fm. þar af er íbúðarhluti 153 fm. og bílskúr 40,1 fm. Umhverfis húsið er gróinn garður með stórum suðvestur sólpall með heitum potti.
Húsið er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.

Eigendur skoða að taka minni eign upp í.

Eignin skiptist í forstofu, í alrými er eldhús og stofu / borðstofu, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, gangur / hol,2 baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

// Stór bílskúr.
// Stór sólpallur sem snýr í suður með heitum potti.
// Mjög vel staðsett eign og stutt í alla þjónustu.
// Stór herbergi.


Það sem hefur verið gert nýlega af eigendum.
- Ný uppþvottavél 2026 (innbyggð)
- Nýlegt helluborð 2024
- Nýlega málað -> öll svefnherbergi, stofa, gangur, eldhús
- Nýr heitur pottur (keyptur og tengdur í júní 2025)
- Bakgarði lokað, staurar steyptir niður og lokað með vírgrindverki að aftan, stórt hlið smíðað að framan.
- Borið á þakskyggni og skjólvegg milli eigna við bílskúrinn síðasta sumar (það er hóað í alla að gera þetta annaðhvert ár)

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengt út á stóran suðvestur sólpall, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.  
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol með parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými með fallegri innréttingu og stórri eyju með miklu skápaplássi, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð á eyju, bakaraofn, innfelld ljós í loft, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi /baðherbergi: Stórt hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi. Inn af herbergi er hjónasalerni, góð innrétting, sturta, upphengt salerni, útgengi út á sólpall, flísalagt í hólf og gólf. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi, með parket á gólfi. 
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi með parket á gólfi. 
Svefnherbergi 4: Rúmgott herbergi, fataskápur, parket á gólfi. 
Gangur / hol: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, falleg innrétting, baðkar, upphengt salerni, innfelld ljós í loft,  flísar á gólfi og við sturtu. 
Þvottahús: Með góðri innréttingu, skolvaskur, innangengt í bílskúr, lúga upp á geymsluloft, flísar á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 40,1 fm. bílskúr, heitt og kalt vatn, rafdrifin bílskúrshurðaopnari, wifi pottastýring með hitanema ,gönguhurð út á framhlið, ómálað gólf.

Húsið: Húsið er byggt 2019 og er úr timbri og klætt að utan með fínkornuðu steni,  gólfhiti er í húsinu. 
Lóð: Framan við húsið er möl í innkeyrslu, á norðurhlið er gras, á baklóð (suðvestur hlið hússins) er ca. 130 fm sólpallur með heitum potti, í pottinum er LED lýsing og hitanemi, framan við pallinn er gras. Búið er að leggja rör út fyrir hita í í innkeyrslu.

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Ísleifsbúð 22

815 Þorlákshöfn
TegundRað-/parhúsStærð193,1 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
110.000.000 kr.570 þ./m²
Byggingarár2019InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2505205Fasteignamat91.250.000 kr.Brunabótamat104.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑