fasteignasölur.is
Snægil 17 íbúð 201
Opið hús 23. sept. kl. 16:00–16:45
1 af 26

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Snægil 17 íbúð 201 - Vel skipulögð 2-3ja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli í Giljahverfi - stærð 70,0 m².

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, geymslu sem í dag er nýtt sem herbergi, baðherbergi, þvottahús og sameiginlegar geymslur

Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofan er björt og rúmgóð með flísum á gólfi.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og milli skápa og miklu skápaplássi.
Svefnherbergið er með flísum á gólfi og fjórföldum fataskáp. Úr herberginu er gengið út á vestursvalir með góðu útsýni.
Geymslan/auka herbergið er inn af eldhúsi og með flísum á gólfi. Rýmið er skráð sem geymsla á teikningu en er í dag nýtt sem auka svefnherbergi og er það með opnanlegum glugga.
Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi og hluta vegggja. Þar er ljós innrétting, walk in sturta, wc, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Þvottahúsið er inn af forstofu með flísum á gólfi og góðri innréttingu.
Sameiginlegar geymslur fylgja eigninni, rúmgott rými er í risinu sem gengið er í af stigapalli, verkfæra skúr er fyrir framan sem og skúr sem notaður er undir hjól/vagna og dekk, allt er þetta sameiginlegt fyrir húsið allt.

Annað:
- Eignin er vel skipulögð þar sem allir fermetrar nýtast virkilega vel
- Steyptar svalir eru út úr hjónaherbergi með góðu útsýni
- Snjóbræðsla er í útitröppum
- Fræbær staðsettning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla.

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Snægil 17 íbúð 201

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundFjölbýlishúsStærð70 m²Herbergi2Svefnherb.2Baðherb.1
49.900.000 kr.713 þ./m²
Byggingarár1998InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2237211Fasteignamat46.900.000 kr.Brunabótamat41.751.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑