fasteignasölur.is
Vestursíða 8a íbúð 102
Opið hús 23. sept. kl. 16:15–17:00
1 af 20

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Vestursíða 8a íbúð 102 - Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjórbýli í Síðuhverfi - stærð 88,8 m²

* Nýtt harðparket var lagt á íbúðina 2026
* Eldhús var endurnýjað í september 2026
* Steypt suður verönd


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 

Forstofa er með flísum á gólfi og tvöföldum skáp. 
Eldhús var endurnýjað í september 2026. Falleg dökk viðar innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi. Ljós bekkplata með svörtum vask og blöndunartækjum. Ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. 
Stofa og eldhús eru í alrými þar sem ljóst harðparket er á gólfum, stórir suður gluggar og hurð út á steypta suður verönd. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,3 og 13,0 m².
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, spónlögð mahony innrétting, wc, sturta og opnanlegur gluggi. 
Þvottahús er inn af forstofunni og þar eru eins flísar á gólfum, hvít innrétting með vask og opnanlegur gluggi. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í geymsluna. 
Geymsla er inn af þvottahúsinu og þar er dúkur á gólfum og hillur á veggjum. 

Annað
- Inntaksrými nýtist einnig sem sameiginleg geymsla. 
- Sameiginlegt leiksvæði er með öðrum eigendum í Vestursíðu 1-8.
- Vel staðsett eign, stutt í leik- og grunnskóla. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Vestursíða 8a íbúð 102

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundFjölbýlishúsStærð88,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
63.900.000 kr.720 þ./m²
Byggingarár1998InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2233084Fasteignamat51.700.000 kr.Brunabótamat50.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑