fasteignasölur.is
Lautarvegur
1 af 5

Um eignina

20 fm þaksvalir - Tvö bílastæði - Sérinngangur - Vönduð gólfefni

Í dag er hæðin rúmlega tilbúin til innréttinga og miðast ásett verð miðað við það. Seljandinn getur hins vegar farið lengra með eignina og/eða fullklárað hana ef þess er óskað. Athugið að eignin skilast með einstaklega vönduðum gólfefnum á gólfum og hljóðdúk í loftinu. Þá verður baðherbergið flísalagt í hólf og gólf með glæsilegum flísum og mjög fallegu sturtugleri. Öll gólfefni, flísar á bað og sturtugler á baði var sérpanntað hjá Mood Interior.


Valhöll fasteignasala kynnir mjög skemmtilega 3ja herbergja sérhæð á efstu hæð í nýbyggingu við Lautarveg neðst í Fossvogsdalnum. Tvennar svalir og þar af 20 fm þaksvalir sem njóta sólar frá austri, suðri og vestri. Tvö sérbílastæði á lóðinni fylgja eigninni. Sérinngangur og fínt útsýni. Gluggar á öllum hliðum.

Frábær staðsetning neðst í Fossvogsdalnum og í allt sem hann hefur upp á að bjóða. Frábærar göngu- og hjólaleiðir inn eftir dalnum og til vesturs í átt að Nauthólsvík.

Hæðin er skráð 119,4 fm á stærð og skiptist í 103,9 fm íbúð, 3,5 fm geymslu innaf svölum og 9 fm geymslu í kjallara. Tvö bílastæði á lóð fylgja íbúðinni.

Hæðin er rúmlega tilbúin til innréttinga og skráð á byggingarstigi 2 (fokhelt). Hæðin selst í því ástandi sem hún er núna fyrir utan þau atriði sem fylgja með og eru nefnd neðar í lýsingu nema samið sé um að seljandinn fari lengra með eignina.  Búið er að teikna glæsilegt eldhús, baðherbergi og fataherbergi og fylgja þær teikningar með. 

Þetta er frábært tækifæri til að eignast glæsilega sérhæð á eftirsóttum stað og innrétta hana að eigin höfði eða fylgja eftir glæsilegum teikningum sem þegar hafa verið gerðar og fylgja með.


Skipulag:
Gengið er inn í hæðina inn um sérinngang og komið inn í anddyri. Frá anddyrinu er svo gengið upp stiga á aðalhæðina. Þar eru tvö svefnherbergi, svalir út frá því minna og fataherbergi innaf því stærra. Á milli svefnherbergjanna er baðherbergið, það er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Í rúmgóðu alrými má svo finna eldhús og samliggjandi stofu og borðstofu. Alrýmið er með björtum gólfsíðum gluggum og rennihurð. Frá alrýminu er gengið út á 20 fm þaksvalir. Þar er mögulegt að setja t.d. heitan pott og saunu.Innaf þaksvölunum er svo lítið geymsla ásamt því að það er stór geymsla í kjallara. Á lóðinni eru svo tvö sérbílastæði.

Nánari lýsing:
Baðherbergi:
– Baðherberginu verður skilað flísalögðu í hólf og gólf með glæsilegum flísum, þ.á.m. einstaklega fallegri skrautflís fyrir aftan blöndunartækin.
– Baðherberginu verður einnig skilað með glæsilegu sturtugleri.

Gólfefni:
– Öll gólfefni verða komin á öll gólf. Um er að ræða sérlega vönduð gólfefni frá Mood Interior þ.e. flísar á anddyri og baðherbergi, teppi á stiga, hjónaherbergi og fataherbergi og gegnheilt parket á svefnherbergi, gang, stofu og eldhús.

Lýsing og rafmagn
– Lumex hannaði lýsinguna en það á eftir að kaupa ljós.
– Eftir er að draga í rafmagn.
– Gert er ráð fyrir free@home snjallkerfi í húsinu.

Málning
– Búið er að heilspartsla, grunna og mála eina umferð í lit. Lokaumferð málningar fylgir með í söluverði.
– Málning og efni koma frá Sérefni.

Teppi
– Teppi í stigann og í stærra svefnherbergi ásamt lagningu á því fylgir með og kemur frá Parket & Gólf.

Hljóðdúkur
– Pons sér um hljóðdúk í kampavínslit. Uppsetning á hljóðdúk fylgir með í söluverði.
– Búið er að smíða ljósabracket fyrir hljóðdúkinn.

Hönnun og byggingaraðili
Byggingaraðili Bstjóri ehf.Lautarvegi 8,103 Reykjavík
Arkitektahönnun  Úti og Inni Arkitektar, Verkfræðihönnun Verkfræðistofa Þráinn og Benedikt
Raflagnahönnun LUMEX. 
Byggingarstjórnun Ómar S.Rafnsson  byggingarmeistari.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Lautarvegur

103 Reykjavík · Kringlan/Hvassaleiti
TegundFjölbýlishúsStærð119,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
108.900.000 kr.912 þ./m²
Byggingarár2024InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2525521Fasteignamat83.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 5 myndir

Upp ↑