fasteignasölur.is
Fellsmúli 2
1 af 25

Um eignina

Vel skipulögð 93,7 fermetra íbúð við Fellsmúla 2 í 108 Reykjavík. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð með góðar suðursvalir út frá stofu. Eignin vel staðsett á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík. Skeifan, Kringlan, menntaskólar, skólar og leikskólar í göngufæri, auk almennrar afþreyingar og þjónustu s.s. heilsugæslu.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu á jarðhæð.

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóðir fataskápar. Parket á gólfi.
Eldhús: Fallegt eldhús með borðkrók. Góð innrétting með efri skápum öðru megin, Smeg blástursofn, Smeg gashelluborð, gufugleypir og pláss fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa, upphengdir veggskápar í stíl við eldhúsinnréttingu. Útgengt út á sólríkar suðursvalir.
Hjónaherbergi: Komið er inn í herbergin af stuttum gangi, hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum, nýlega teppalagt með teppi frá Parka.
Barnaherbergi: Fataskápar á gangi framan við herbergi, teppalagt.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og upp á veggi. Baðkar með sturtu og baðinnrétting með rými fyrir þvottavél.
Geymsla: Eigninni tilheyrir 4,7fm. sérgeymsla á jarðhæð hússins.
Sameign: Sameiginleg hjóla-/vagnageymsla er í húsinu. Sett hefur verið upp sameiginleg hleðslustöð á bílastæði við húsið.

Vel staðsett eign í göngufjarlægð frá leikskóla, grunnskóla og margvíslegri þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða í netfangið jason@betristofan.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fellsmúli 2

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð93,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
66.900.000 kr.714 þ./m²
Byggingarár1963InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2015654Fasteignamat66.450.000 kr.Brunabótamat47.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑