fasteignasölur.is
Ægisíða 92
1 af 23

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Glæsileg 122,7 fm efri hæð í húsinu við Ægisíðu 92. Arkitekt hússins er Einar Sveinsson. Húsið eitt af þessum fallegu virðulegu húsum við Ægisíðu. Glæsilegar samliggjandi stofur með skrautlistum í loftum. Tvennar svalir. Gróinn garður til suðvesturs. Stórglæsilegt útsýni, m.a. sjávar- og fjallasýn.

BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ : Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861-8511, magnea@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali.

Nánari lýsing:
Þegar komið er inn í anddyri, blasa við háir gluggar og hringlaga teppalagður stigi. Stigaholið er rúmgott og bjart, þar eru mjög háir gluggar sem sem setja einstaklega fallegan svip á rýmið. Frá stigapalli er gengið inn í íbúðina.
Hol: Komið er inn í í teppalagt hol með sérsmíðuðum skápum. Veggfóður er á veggjum. Upprunalegur stíll hefur verið látinn halda sér.
Þrjár stofur: Þrjár glæsilegar teppalagðar samliggjandi stofur. Mjög fallegir skrautlistar og rósettur eru í loftum. Svalir. Stórglæsilegt útsýni, m.a. sjávar- og fjallasýn.
Herbergi I: Rúmgott teppalagt hjónaherbergi með skápum. Svalir eru út af hjónaherbergi til austurs.
Herbergi II: Mjög rúmgott teppalagt herbergi (tvö herbergi samkvæmt teikningu) með útbyggðum horngluggum sem eru einkennandi fyrir þetta hús. 
Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað með fallegri ljósri innréttingu. Borðkrókur og dúklagt gólf. 
Baðherbergi: Baðherbergið hefur verið endurnýjað. Sturtuklefi er á baðherbergi. Gólf er flísalagt. Gluggi er á baðherbergi.Lögn fyrir þvottavél.
Íbúðin var endurnýjuð að miklu leyti árið 1991: baðherbergi flísalagt, nýir gluggar í íbúðinni, gler, raflagnir og fl. Eldhúsið var endurnýjað árið 2001 og settur nýr sturtuklefi á baðherbergi árið 2008.  
Sér geymsla er í kjallara svo og sameiginlegt þvottahús.

Framkvæmdir utanhúss: 
Húsið var málað árið 2012. Sett var dren austanmegin við húsið árið 2000 og klárað að setja hringinn í kringum húsið árið 2008. Frárennslislagnir frá húsi voru fóðraðar í kringum árið 2010. Járn á þaki hússins var endurnýjað árið 1991 og málað síðast árið 2012. Gluggar í búðinni voru endurnýjaðir árið 1991. Hiti er í stétt í innkeyrslu frá árinu 2008 og þá var skipt um jarðveg/undirlag fyrir bílskúr sem gert var ráð fyrir inn af innkeyrslu og gömul teikning er til af.* Rafmagnslögn hefur verið sett úr rafmagnstöflu 2. hæðar út fyrir norðurvegg tl að hægt verði að tengja við hleðslustöð.

Frábær staðsetning við Ægisíðu. Örstutt í verslanir, sundlaug, kaffihús og helstu þjónustu. Mjög fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í næsta nágrenni.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Ægisíða 92

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundHæðStærð122,7 m²Herbergi6Svefnherb.2Baðherb.1
132.900.000 kr.1.083 þ./m²
Byggingarár1951InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2027854Fasteignamat125.450.000 kr.Brunabótamat59.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑