fasteignasölur.is
Grensás 30
1 af 6

Um eignina

Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna: *** AFAR FALLEGUR BÚSTAÐUR Á GRÓÐURSÆLU LANDI RÉTT FYRIR UTAN SELFOSS ***
Grensás 30, 805 Selfoss – 102 m² sumarhús í byggingu á 4.540 m² eignarlóð
Fallegt og vel skipulagt sumarhús í byggingu á stórri eignarlóð í landi Búrfells II. Húsið er 102 m² samkvæmt skráningu HMS og stendur á 4.540 m² eignarlóð með fallegu útsýni. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgott alrými og gert ráð fyrir svefnlofti. Möguleiki er á að fá húsið afhent lengra komið.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS

Nánari lýsing eignar
Húsið verður klætt að utan með bandsöguðu timbri og er gert ráð fyrir ál/tré gluggum. Húsið stendur á steyptri plötu með hitalögnum og gert er ráð fyrir loft-í-vatn varmadælu til upphitunar.
Þak er frágengið og klætt torfi. Húsið afhendist með sólpalli, auk þess sem bílastæði og aðkoma verða frágengin.
Að innan afhendist húsið einangrað og plastað með rafmagnsgrind tilbúna.
Kaupendum stendur jafnframt til boða að semja um að fá húsið afhent lengra komið.

Heimtaugagjöld vegna kalds vatns og rafmagns verða greidd og rotþró verður frágengin.
Skipulag samkvæmt teikningum

Forstofa: Góð forstofa við inngang hússins.
Stofa og eldhús: Bjart og rúmgott alrými þar sem gert er ráð fyrir stofu og eldhúsi saman. Góð lofthæð gefur rýminu skemmtilegt yfirbragð.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með sér baðherbergi.
Herbergi: Tvö önnur góð svefnherbergi.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi eru samkvæmt teikningum, annað þeirra inn af hjónaherbergi.
Tæknirými og geymsla: Gert er ráð fyrir sér tæknirými og geymslu.
Svefnloft: Gert er ráð fyrir skriðlofti sem nýtist sem svefnloft og gefur eigninni skemmtilega viðbótarmöguleika.

Lóð og staðsetning.
Lóðin er 4.540 m² eignarlóð með fallegu útsýni og góðu rými í kringum húsið. Árgjald til félags sumarhúsaeigenda á svæðinu er 25.000 kr.

Staðsetningin er góð fyrir þá sem vilja njóta náttúrunnar en jafnframt vera í þægilegri fjarlægð frá fjölbreyttri afþreyingu og þjónustu. Stutt er til margra af þekktustu áfangastaða Suðurlands, meðal annars Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Keriðs.
Í nágrenninu eru jafnframt fjölbreyttir möguleikar til útivistar, meðal annars golf, sund, veiði og fallegar gönguleiðir.
Hér er um að ræða spennandi tækifæri til að eignast nýtt og vel skipulagt sumarhús á stórri eignarlóð á fallegum stað á Suðurlandi. Möguleikinn á að fá húsið afhent lengra komið gefur kaupendum jafnframt ákveðinn sveigjanleika varðandi endanlegan frágang eignarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson Löggiltur fasteignasali., í síma 623-1717, tölvupóstur svavar@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Grensás 30

805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð102 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
49.900.000 kr.489 þ./m²
InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2344096Fasteignamat2.940.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 6 myndir

Upp ↑