Opið hús 24. sept. kl. 17:00–18:00
1 af 51Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Mjög fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni með innbyggðum bílskúr á eftirsóttum stað við Garðsstaði í Grafarvogi. Eignin er samtals skráð 148 fm, þar af er íbúðarrými 120,1 fm og bílskúr 27,9 fm. Skjólgóð og sólrík timburverönd er við húsið. Eignin telur þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Stutt í golfið á Korpu, Egilshöll, sund, Spöngina, skóla og góðar gönguleiðir. Að sögn seljanda hafa verið veitt leyfi fyrir viðbyggingum við eins hús í götunni. Falleg eign á mjög eftirsóttum stað. Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.isAðkoma að húsinu einkennist af breiðu hellulögðu bílaplani með nægu rými. Gengið er inn í húsið að framanverðu inn í rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi. Úr forstofu er innangengt í bílskúrinn.
Komið er úr forstofu í miðrými eða hol þaðan sem er genið í öll rými hússins. Til hægri frá forstofu er hálfopið rúmgott og bjart eldhús með snyrtilegri viðarinnréttingu og góðum borðkrók. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur sem fylgja eigninni. Parket á gólfi. Stofa og borðstofa er í einu rými, mjög bjartar með góðum gluggum og parketi á gólfi. Útgengi er á stóra, sólríka verönd með skjólveggjum sem snýr til suðurs og vesturs. Hluti af veröndinni er steypt plata sem ætluð var undir garðstofu. Að sög seljenda er auðvelt að nálgast lagnir til að geta sett pott við húsið.
Baðherbergi var endurnýjað fyrir nokkrum árum, með veghengdu salerni, göngusturtu, flísum á gólfi og veggjum, gleri fyrir sturtu, handklæðaofni og eikarlitaðri innréttingu. Þvottahús er innaf baðherbergi, flísalagt með innréttingu og glugga.
Í húsinu er þrjú herbergi – rúmgott hjónaherbergi með skápum á heilum vegg og tvö minni bæði með fataskáp.
Bílskúr er rúmgóður með geymslu innaf, en einnig er geymsluloft yfir stórum hluta hússins.
Lóð hússins er stór, 758 fermetrar, og mjög fallega gróin. Seljendur benda á að fjöldi fugla gerir sér hreiður í trjám í garðinum.
Húsið hefur fengið gott viðhald gegnum árin. M.a. hafa neysluvatnslagnir verið endurnýjaðar með því að leggja þær í loftagrind hússins, þannig að aðgengi er mjög gott.
Mjög áhugaverð og vel um gengin eign með mikla möguleika sem vert er að skoða. Til að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Garðsstaðir 46
112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundEinbýlishúsStærð148 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
145.500.000 kr.983 þ./m²
Byggingarár1999InngangurMargir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2239210Fasteignamat125.600.000 kr.Brunabótamat88.650.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 51 myndir
Upp ↑

















































