Opið hús 23. sept. kl. 17:00–18:00
1 af 41Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Mikið endurnýjuð, björt og vel skipulögð 115,1 fermetra íbúð með fjórum svefnherbergjum, björtu og huggulegu stofurými með útgengi á lokaðar svalir, og stort eldhús með þvottahúsi innaf. Gluggar á þrjá vegu í íbúðinni. Eignin er skráð 115,1, fermetrar hjá HMS, sem skiptist í 109 fermetra íbúð merkt 01-0201 og 6,1 fermetra geymslu merkt 01-0109. Mikið endurnýjuð og falleg íbúð sem nýtist mjög vel. Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.isTil að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.
Forstofa er með fataskápum og leiðir áfram inn á gang þar sem gengið er í öll rými eignarinnar. Gangur er opinn til stofu. Á gangi er hjónaherbergi með góðum fataskápum og tvö barnaherbergi, einnig með skápum. Þriðja barnaherberginu hefur verið bætt við með því að taka af stofurými, sem þrátt fyrir breytinguna er rúmgott og vistlegt, en bjartir gluggar einkenna rýmir auk stórra svala en úr stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir mót suðri. Baðherbergi er með glugga, flísalagt með upphengdu salerni og innréttingu. Baðkar með sturtu og glervæng. Gengið er áfram inn í stofurými með rúmgóðri setustofu og borðstofu með aðliggjandi opnu eldhúsi með viðarinnréttingu, flísum milli skápa og uppþvottavél. Þvottaherbergi er inn af eldhúsi með hillum, skáp og skolvaski. Á íbúðinni eru gluggar á þrjá vegu. Nýtt harðparket er á öllum meginrýmum íbúðarinnar nema flísar á forstofu, baði og þvottahúsi.
Á árinu 2022 var gólfið á íbúðinni flotað og sett nýtt parket auk þess sem forstofan var flísalögð og allar hurðir í íbúðinni endurnýjaðar. Einnig var settur nýr vaskur á baðherbergi, geymslan gerð upp og geymslugólf málað.
Á jarðhæð hússins er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsið er klætt að utan með viðhaldslítilli klæðningu. Gróin og falleg lóð. Vel staðsett eign í nágreinni við skóla og leikskóla. Stutt í alla helstu þjónustu og verslanir.
Einstaklega vel nýtt eign, frábærlega staðsett, sérlega heppileg fyrir barnafjölskyldu.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Núpalind 8
201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð115,1 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
84.900.000 kr.738 þ./m²
Byggingarár1999InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2234951Fasteignamat80.550.000 kr.Brunabótamat65.550.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 41 myndir
Upp ↑







































