fasteignasölur.is
Kvíslartunga 112
Opið hús 23. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 59

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallegt og fjölskylduvænt 229,9 m2  5.herbergja endaraðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Kvíslartungu 112 í Mosfellsbæ með fallegu útsýni. Birt stærð eignarinnar er 229,9 m2, þar af er íbúðarhluti 205,4 m2 og sambyggður bílskúr 24,5 m2. 

Á efri hæð er stofa, borðstofa, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi, sjónvarpshol (hægt að breyta í svefnherbergi) og baðherbergi. Stórar svalir til suðvesturs með fallegu útsýni. Á jarðhæð eru 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymsla, gangur, forstofa og bílskúr.

Vel skipulögð eign á góðum stað í Leirvogstunguhverfi, stutt í leikskóla, vinsælar gönguleiðir og útivistarsvæði.  


Nánari lýsing efri hæðar
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á stórar svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.
Eldhús með parketi á gólfi og hvítri L-laga eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.  
Hjónaherbergi  með parketi á gólfi og fataskápum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi (notað sem skrifstofa í dag). 
Sjónvarpshol er inn af stofu  með parketi á gólfi. Hægt að loka og breyta í fimmta svefnherbergið. 
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, handklæðaofni og 'walk in' sturtu. Gluggi er á baðherbergi. 

Nánari lýsing neðri hæðar
Forstofa 
er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er gengið inn í bílskúr. 
Barnaherbergi (1) með með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi (2)  með með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi (3)  með með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi flísalögðu gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, handklæðaofni og baðkari með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús með innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi er á þvottahúsi. 
Geymsla með flísum á gólfi er inn af þvottahúsi. Gluggi er á geymslu.
Gangur með parketi á gólfi. Útgengt í garð aftan við hús. 
Bílskúr með epxoý á gólfi og rafdrifinn bílskúrshurðaropnara. 

Steypt plan er framan við hús, upphitað á lokuðu kerfi. Lóð er að öðru leyti grófjöfnuð. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er við bílastæði.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Kvíslartunga 112

270 Mosfellsbær
TegundRað-/parhúsStærð229,9 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
134.900.000 kr.587 þ./m²
Byggingarár2018InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2331144Fasteignamat142.200.000 kr.Brunabótamat131.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 59 myndir

Upp ↑