fasteignasölur.is
Eskiholt 15
1 af 53

Um eignina

Nýtt á skrá! Eskiholt 15 Garðabæ - Glæsilegt og mikið endurnýjað 288,4 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum. 

Eignin er eingöngu sýnd í einkasýningu - heimir@fastlind.is

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt 8 herbergja 288,4 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum, teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt, við Eskiholt 15 í Garðabæ. Eignin skiptist í 188,3 fermetra aðalhæð og 100,1 fermetra neðri hæð. Miklar og glæsilegar endurbætur á húsinu voru í höndum Guðbjargar Magnúsdóttur innanhúsarkitekts.

Um er að ræða afar vel staðsetta eign með glæsilegu útsýni í grónu og rólegu fjölskylduhverfi í lokuðum botlanga við Eskiholt í Garðabæ. Húsið er afar sjarmernandi þar sem upprunaleg einkenni hússins hafa fengið að njóta sín þrátt fyrir miklar og vel heppnaðar endurbætur á húsinu. Aðkoma að húsinu sem og innganga inn í húsið er virkilega falleg. Húsið er með stórum fallegum gluggum, vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, tækjum og gólfefnum. Glæsilegar stofur þar sem upprunalegur arinn fær að njóta sín í arinstofu hússins. Sömuleiðis hefur glæsilegur stigi og upprunalegt stigahandrið fengið að halda sér sem gefur húsinu mikin karakter. Útgengi á efri og neðri verönd til suðurs frá sitthvorri hæðinni með heitum potti, markísu og rafmagnshitara. Stórar svalir liggja út frá stofum til suðurs/vesturs með glæsilegu útsýni út á sundin.

Eignin fengið mjög gott viðhald í gegnum árin og ber húsið þess vel merki að utan sem innan. Árið 2017 fór húsið í gegnum miklar endurbætur þar sem skipulagi hússins var breytt að hluta eftir nútímalegum kröfum.  Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð með sérsmíðuðum innréttingum og vönduðum eldhús- og blöndunartækjum. Gólfefni voru sömuleiðis öll endurnýjuð (flísar og parket). Auk þess voru neysluvatnslagnir, raflagnir og ofnalagnir endurnýjaðar (ásamt flestum ofnum).

Aðalhæðin (efri hæð): Er vel skipulögð með glæsilegri innkomu um stóra forstofu þar sem gengið er niður nokkur þrep inn í alrými hússins. Stór og sjarmerandi alrými (arinstofa, setustofa og borðstofa) og útgengi á miklar svalir með afar fallegu útsýni. Fallegt útsýni er úr stofum og eldhúsi efri hæðar. Glæsileg sér smíðuð eldhúsinnrétting úr ljósum við/hvítum skápum og steini á borðum og eyju. Frá forstofu er gengið inn í bílskúr sem er nýttur sem geymsla í dag þar sem hluti af bílskúr er nýttur sem herbergi og hluti af forstofu. Þá eru tvö rúmgóð herbergi, gestasnyrting, búr og glæsilegt stigahol á efri hæð.


Neðri hæð: Komið er niður í stórt fallegt hol þar sem er gengið inn í öll rými neðri hæðar. Stórt hjónaherbergiherbergi og tvö svefnherbergi (eru nýtt sem eitt stórt herbergi í dag). Glæsilegt baðherbergi með útgengi á neðri verönd þar sem heitur pottur er staðsettur. Þá er stórt þvottaherbergi með auka sturtu og miklu vinnuplássi ásamt útgengi á lóð norðan megin hússins.

Lóðin er 775,0 fermetrar að stærð og er virkilega falleg og vel hirt. Hellulögð bílastæði fyrir framan hús, tvær verandir á sitthvorri hæðinni og tyrfð flöt neðan megin við hús. Verönd er einstaklega falleg með gróðri sem umlykur og veitir gott skjól. Heitur pottur á neðri verönd sunnan megin við húsið. Falleg og gróin lóð sem nýtur skjóls.

Nánari lýsing:
Efri hæð: 
Forstofa: Er stór með flísum á gólfum og miklu skápaplássi. 
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi, upphengdu salerni, skápum, vask og glugga til austurs.
Svefnherberg I: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og gluggum til norðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til austurs og suðurs.
Hol: Er rúmgott með flísum á gólfi þar sem komið er inn í alrými hússins frá forstofu niður flísalagðar tröppur. Þaðan tekur við glæsilegur og vandaður stigi á milli hæða.
Setustofa: Með gegnheilu parketi á gólfi og stórum gluggum til vesturs með glæsilegu útsýni út á sundin, að Bessastöðum og víðar. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru stórar og liggja sunnan og vestan megin við húsið. Sólríkar með fallegu útsýni.
Arinstofa/sjónvarpsstofa: Með gegnheilu parketi á gólfi, fallegum arinn og gluggum til suðurs. Útgengi á efri verönd frá arinstofu.
Verönd I: Viðarverönd með markísu og rafmagnshitara.
Borðstofa: Með gegnheilu parketi á gólfi og fallegum gluggum til vesturs. Borðstofa tekur við af setustofu og er opin við eldhús að hluta.
Eldhús: Með flísum á gólfi og glæsilegri sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu með steini á borðum. Eldhús er stórt með stórri eldhúseyju og miklu skápaplássi. Falleg gluggasetning til vesturs og norðurs. Vönduð eldhústæki frá Siemens (helluborð, bakaraofn, örbylgjuofn, innb. kæliskápar og uppþvottavél).
Búr: Er staðsett inn af eldhúsi með flísum á gólfi og innréttingum. Vinnuborð, hillur og gluggi til norðurs.

Neðri hæð:
Hol: Gegnheilt parketi og útgengi á hellulagða verönd til norðurs. Þaðan liggja tröppur upp á bílaplan og auk þess er hægt að ganga að tyrfðum bakgarði.
Þvottaherbergi: Er stór með flísum á gólfi. Mikið skápa- og vinnupláss. Flísalögð sturta með glerþili, vinnuborð, vaskur, tenglar fyrir þvottavél/þurrkara og gluggi til norðurs.
Svefnherbergi IV: Er stórt með gegnheilu parketi á gólfi. Var áður tvö svefnherbergi og auðvelt að breyta til baka. Gluggar til vesturs og skápar.
Hjónaherbergi: Er stórt með gegnheilu parketi á gólfi. Skápar á heilan vegg og gluggar til vesturs.
Baðherbergi: Er stór og afar glæsilegt. Flísar á gólfi og hluta veggja. Sérsmíðaðar innréttingar með steini á borðum. Stór flísalögð sturta með innb. Hansa blöndunartækjum og glerþili. Upphengt salerni. Útgengi á verönd II:
Verönd II: Viðarverönd með heitum potti.

Bílskúr: Er skráður 48,4 fermetrar með tveimur innkeyrsluhurðum en er minni í dag þar sem hluti af honum er nýttur sem svefnherbergi og hluti af forstofu. Epoxy gólf og gluggar til norðurs.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Eskiholt 15

210 Garðabær
TegundEinbýlishúsStærð288,4 m²Herbergi8Svefnherb.5Baðherb.2
255.000.000 kr.884 þ./m²
Byggingarár1983InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2069920Fasteignamat194.700.000 kr.Brunabótamat162.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 53 myndir

Upp ↑