fasteignasölur.is
Hólavegur 30
1 af 23

Um eignina

Fasteignin Hólavegur 30 n.h., Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum. Rúmgóð og mikið endurnýjuð 142 fm neðri sérhæð ásamt bílskúr. Eignin skiptist í 111,6 fm íbúð og 26,3 fm bílskúr. Húsið er klætt að utan með viðhaldslítilli trapisuklæðingu. Lóðin er tvískipt en eigninni tilheyrir sérafnotareitur vestan megin þar sem grasflötur og pallur tilheyra neðri hæðinni. Einnig tilheyrir innkeyrslan norðan við húsið íbúðinni á neðri hæð.

Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymslu.

Komið er inn í flísalagða forstofu þar sem ný útidyrahurð var sett í árið 2020. Í forstofunni er fatahengi.
Úr forstofu er gengið inn á parketlagt hol.
Stofan er björt og með parketi á gólfum. Þaðan er útgengt út á útisvæði/stétt sunnan megin við húsið. Aðalrými íbúðarinnar var málað árið 2024.
Eldhúsið er með parketi á gólfi og góðum borðkrók. Hvít innrétting sem var sprautulökkuð árið 2017.
Innaf eldhúsi er rúmgott þvottahús með skápum. Útgengt er úr þvottahúsinu til norðurs, að bílastæði sem tilheyrir íbúðinni. Inn af þvottahúsinu er geymsla.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði parketlögð og með fataskápum.
Baðherbergið var tekið í gegn árið 2017. Það er flísalagt með dökkgráum gólfflísum og hvítum veggflísum, og með hita í gólfi. Hvít innrétting, speglaskápur, upphengt salerni, hvítur handklæðaofn, hvítur skápur og sturta.

Upphaflega voru þrjú svefnherbergi í íbúðinni en einu var breytt til þess að stækka stofuna og útbúa sjónvarpshol. Árið 2024 var fyllt í hurðargatið að sjónvarpsholinu með gipsklæðningu til að stúka rýmið af, en afar auðvelt er að opna það aftur vilji nýir eigendur nýta það sem þriðja svefnherbergið.

Bílskúrinn er útbúinn rafdrifinni bílskúrshurð, auk gönguhurðar. Gluggar eru á suðurhlið bílskúrs.

Sólpallur, vestan við húsið, var smíðaður árið 2024.

Árið 2017 voru allar vatnslagnir (neysluvatn, ofnalagnir og frárennsli) endurnýjaðar, lagnagrind endurnýjuð, og nýtt vatnsinntak og affall tekið út í götu. Raflagnir voru sömuleiðis endurnýjaðar að mestu leyti á sama tíma og ný rafmagnstafla sett upp. Öll gólf íbúðarinnar, að undanskildu eldhúsi og þvottahúsi, voru flotuð, ný gólfefni lögð og allar innihurðir sprautulakkaðar árið 2017. 

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala

Hólavegur 30

550 Sauðárkrókur
TegundHæðStærð142 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
57.000.000 kr.401 þ./m²
Byggingarár1961InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2131802Fasteignamat52.050.000 kr.Brunabótamat65.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSæmundargata 1, 550Sími453-5900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑