fasteignasölur.is
Reynidalur 3
Nýtt
1 af 16

Um eignina


TILBOÐ! -→ LÆKKAÐ VERÐ! -→ GILDIR TIL 1. OKTÓBER -→ BÓKIÐ SKOÐUN -→ S: 888-1245

 

Einstaklega rúmgóð og björt 3-4 herbergja endaíbúð á efri hæð í nútímalegu tveggja hæða fjölbýli. Íbúðin er vel skipulögð með sérinngangi og suðursvölum.


Forstofa: Rúmgóð með flísalögðu gólfi og stórum fataskáp.

Stofa, borðstofa og eldhús:  Opið rými með með harðparketi frá Birgisson og útgengi á suður svalir. Eldhúsinnrétting frá Arens, helluborð frá AEG með háfi, innbyggður blástursofni í vinnuhæð og Samsung ísskápur með frysti. 

Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með harðparketi frá Birgisson og stórum innbyggðum skápum frá Arens.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Þar er falleg innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, sturta, loftræsting og gluggi. Inn af baðherbergi er þvottahús með flísum á gólfi og ljósri innréttingu.

Geymsla: Er innan íbúðar, parket á gólfi. Þar er gluggi og því mögulegt að nýta rýmið sem svefnherbergi.

Merkt bílastæði fylgir eigninni. Góðar svalir sem snúa til suðurs. Frábær staðsetning þar sem stutt er í glæsilegan nýjan grunn- og leikskóla, Stapaskóla.

Lóð: Sameiginleg lóð sem er tyrfð. 

Íbúðin er einstaklega falleg og aðlaðandi. Góðar gönguleiðir eru í hverfinu. Stutt er á Fitjar þar sem er mikill þjónustukjarni með veitingastöðum og matvörubúðum. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Örn í s: 888-1245 eða á sohh354@gmail.com

 

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Tilboðsgerð

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð

Reynidalur 3

260 Njarðvík
TegundFjölbýlishúsStærð97,9 m²Herbergi3Svefnherb.3Baðherb.1
61.900.000 kr.632 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2508337Fasteignamat62.650.000 kr.Brunabótamat50.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðabær, 210Sími/ Heimasíða: www.e-fasteignir.is

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑