fasteignasölur.is
Spóahólar 12
1 af 34

Um eignina

Prima fasteignasala og Oscar Clausen lgf. kynna eignina Spóahólar 12, 111 Reykjavík,  Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð ásamt bílskúr í fjölskylduvænu hverfi
Góð 103,1 fm eign á 2. hæð í snyrtilegu og vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Spóahóla 12. Eigninni fylgir 24,4 fm bílskúr, sérgeymsla og stórar svalir.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og alla helstu þjónustu.


Nánari lýsing:
Hol:  tengir saman alrými og svefnherbergisgang.
Eldhús: Bjart og snyrtilegt með nýlegri innréttingu, flísar á gólfi og aðstaða til að borða við glugga til suðausturs.
Stofa & Borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með góðum gluggum. Útgengt er á svalir úr stofu.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með upprunalegum fataskápum.
Barnaherbergi: Bjart og með harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél.
Gólfefni: Vandað harðparket er á öllum gólfum nema í  eldhúsi eru flísar og  dúkur á baðherbergi.

Bílskúr & Sameign:
Bílskúr (24,4 fm): Rúmgóður bílskúr með vinnuborði og sérmerktu bílastæði fyrir framan.
Sérgeymsla (4,5 fm): Staðsett á jarðhæð.
Sameign: Í sameign er sameiginlegt þvottahús auk vagna- og hjólageymslu.

Ástand & Viðhald húss:
Húsið hefur hlotið gott viðhald í gegnum árin, og nýlega málað.
Þak: Endurnýjað árið 2018.
Gluggar: Gluggar íbúðar hafa verið endurnýjaðir.
Rafmagn:  bæði rafmagnstafla í sameign og íbúð hafa verið endurnýjaðar.
Gólfefni: skipt hefur verið um öll gólfefni í íbúðinni fyrir utan baðherbergi.
Ofnar: skipt hefur verið um flesta ofna, allir kranar og hitastillar eru nýjir. 

Nærumhverfi og staðsetning
Eignin er staðsett í mjög barnvænu og grónu hverfi þar sem stutt er í öll stig skóla og fjölbreytta þjónustu:
Skólar og leikskólar: Hólabrekkuskóli er hverfisskólinn og er hann steinsnar frá húsinu. Í næsta nágrenni eru þrír leikskólar: Hólaborg, Hraunborg og Suðurborg.
Framhaldsskóli: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti (FB) er í þægilegu göngufæri.
Verslun og þjónusta: Stutt er í Hólagarð þar sem er Bónus ásamt margvíslegri annarri verslun og þjónustu. Eins er íþróttafélagið Leiknir í næsta nágrenni.
 
Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.8618466 / oc@primafasteignir.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Prima fasteignasala ehf.
64.900.000 kr.629 þ./m²
+39,6% á 5 árum
4. nóvember 2021Fyrsta sala
46.500.000 kr.451 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Spóahólar 12

111 Reykjavík · Berg/Hólar/Fell
TegundFjölbýlishúsStærð103,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
64.900.000 kr.629 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF2049868Fasteignamat61.650.000 kr.Brunabótamat53.360.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSuðurlandsbraut 6, 108 ReykjavíkSími511-7030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑