fasteignasölur.is
Torrevieja, Spánn
1 af 15

Um eignina

Hugguleg og talsvert endurnýjuð 2.svefnherbergja íbúð á frábærum stað í Torrevieja – allt í göngufæri!

Pálmi fasteignasala býður í einkasölu þessa notalegu íbúð á mjög góðum stað í hjarta Torrevieja, þar sem þú þarft nánast ekki á bíl að halda.

Frábær staðsetning
• Um 10 mínútna ganga í miðbæ Torrevieja
• Um 10 mínútna ganga á ströndina
• Um 15 mínútna ganga í Habaneras verslunarmiðstöðina
• Fjölbreytt úrval veitingastaða, kaffihúsa, verslana og þjónustu rétt við eignina

Íbúðin er á 3. hæð í snyrtilegu húsi með lyftu og skiptist í tvö svefnherbergi, nýuppgert baðherbergi og fallegt alrými þar sem opið eldhús tengist borðstofu og stofu. Rýmið er bjart, notalegt og vel nýtt.

Það sem gerir eignina sérstaklega áhugaverða:
✔️ 2 svefnherbergi
✔️ Nýuppgert baðherbergi
✔️ Opið og notalegt eldhús
✔️ Svalir – fullkomnar fyrir morgunkaffið ☕️
✔️ Loftkæling með hita og kælingu
✔️ Viftur
✔️ Bílastæði í lokuðum bílakjallara
✔️ Sameiginleg sundlaug 🏊‍♂️
✔️ Innbú fylgir með

Eignin getur orðið laus til afhendingar mjög fljótlega.

Verð 159.900 evrur + 13-15% kostnaður.

Torrevieja, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
TegundFjölbýlishúsStærð62 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.1
22.290.060 kr.360 þ./m²
FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑