fasteignasölur.is
Ciudad Quesada, Spánn
1 af 15

Um eignina

Glæsilegt og mikið endurnýjað einbýli á einni hæð i Ciudad Quesada.

Fallegt og vandað einbýlishús á frábærum stað í hinu vinsæla Doña Pepa hverfi í Ciudad Quesada. Hér færðu rólegt og einkar þægilegt umhverfi, en á sama tíma er stutt í allt sem þarf til daglegs lífs, verslanir, apótek, heilsugæslu, veitingastaði og kaffihús.

Eignin var upphaflega byggð árið 2005 en hefur síðan verið algjörlega endurnýjuð frá grunni, þar á meðal rafmagn, lagnir, gólfefni og veggir.

Húsið er 165 m² og stendur á rúmgóðri 530 m² einkalóð. Það er selt fullbúið með húsgögnum og er því í raun tilbúið til notkunar strax.

Inni er bjart og rúmgott alrými með stofu og borðstofu ásamt nútímalegu, fullbúnu eldhúsi með innbyggðum gæðaheimilistækjum. Húsið býður upp á fjögur rúmgóð svefnherbergi og þrjú glæsileg baðherbergi.

Aðalsvefnherbergið er sérstaklega veglegt og er með sér baðherbergi og stóru fataherbergi.

Orkunýting og þægindi eru í algjörum sérflokki. Á þaki eru 10 kW af sólarrafhlöðum, snjallrofar og innstungur eru um allt húsið og upphitun er með innrauðri hitun. Þá er hitadæla og fjórir nýjir invertar / loftkælingar sem sjá um kælingu og upphitun allt árið. Eignin er því með A-orkuflokkun, sem ásamt sólarorkukerfinu gerir rekstrarkostnað mjög hagkvæman.

Undir húsinu er svo um 80 m² ófrágengið rými sem býður upp á gríðarlega möguleika. Þar mætti til dæmis útbúa heimabíó, líkamsrækt, skrifstofu, gestaherbergi eða jafnvel séríbúð, allt eftir þörfum nýs eiganda.

Útisvæðið er ekki síður glæsilegt. Á lóðinni er stór og falleg 10 x 5 metra einkasundlaug með útisturtu, útieldhús, yfirbyggð verönd með útdraganlegum skyggnum, falleg lýsing í garði, sólpallar og einkasólpallur á þaki.

Aðkoma að eigninni er mjög góð með sjálfvirku hliði og bílastæði innan lóðar.

Helstu atriði:

• 4 svefnherbergi

• 3 baðherbergi

• 165 m² hús

• 80 m² kjallari/undirbygging með mikla möguleika

• 530 m² einkalóð

• 10 x 5 m einkasundlaug

• 10 kW sólarorkukerfi

• A-orkuflokkur

• Innrauð upphitun um allt húsið

• Hitadæla

• 4 nýjar inverter-loftkælingar

• Snjallrofar og innstungur

• Fullbúið og fullhúsgagnað

• Nútímalegt eldhús með innbyggðum heimilistækjum

• Aðalsvíta með stóru fataherbergi

• Útieldhús

• Yfirbyggð verönd með skyggnum

• Einkasólpallur á þaki

• Sjálfvirkt hlið og bílastæði

• Algjörlega endurnýjað hús


Staðsetningin er frábær. La Marquesa golfvöllurinn er í stuttri akstursfjarlægð og fallegar strendur Guardamar del Segura, með sínum löngu sandströndum og sandöldum, eru í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð.

Þetta er eign fyrir þá sem vilja fallegt og tilbúið heimili á Spáni, með miklu næði, glæsilegu útisvæði og einstaklega góðri orkunýtingu – án þess að þurfa að fara í framkvæmdir.

Laust til afhendingar strax.

Verð 535.000 evrur + 13-15% kostnaður.

Nánari upplýsingar um Ciudad Quesada
hér

Ciudad Quesada, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
TegundEinbýlishúsStærð165 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.3
74.579.000 kr.452 þ./m²
FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑