Um eignina
NÝTT EINBÝLISHÚS MEÐ EINKASUNDLAUG Í CIUDAD QUESADA
Nýtt og glæsilegt einbýlishús á einni hæð í rólegu og grónu íbúðahverfi í Ciudad Quesada, einu vinsælasta svæði Costa Blanca.
Húsið er um 90 m² og er vel skipulagt með rúmgóðu og björtu alrými, 3 metra lofthæð og vönduðum byggingarefnum.
Hér er um að ræða eign sem hentar jafnt sem orlofseign eða til heilsársbúsetu.
Helstu upplýsingar:
3 svefnherbergi
2 baðherbergi
Opið og bjart alrými með eldhúsi
Einkasundlaug
Verönd
Bílastæði innan lóðar
3 metra lofthæð
Gólfhiti í öllu húsinu
Loftkæling
Orkuflokkur A
Hönnuð með mikilli mótstöðu gegn jarðskjálftum, allt að 9 stigum samkvæmt uppgefnum byggingarforskriftum
Rólegt og rótgróið íbúðahverfi
FRÁBÆR STAÐSETNING.
Eignin er vel staðsett í Ciudad Quesada, þar sem stutt er í það helsta sem þarf í daglegu lífi. Verslanir, veitingastaðir, kaffihús, barir og önnur þjónusta eru í næsta nágrenni.
Golfáhugafólk er einnig vel staðsett og La Marquesa Golf er í stuttri akstursfjarlægð.
Aðeins um 12 mínútur með bíl að ströndinni
Um 40 mínútur með bíl að Alicante-flugvelli
NÝTT HÚS OG NÚTÍMA ÞÆGINDI
Eignin sameinar nútímalega hönnun og þægindi sem henta vel fyrir lífið á Costa Blanca. Gólfhiti um allt húsið, loftkæling, mikil lofthæð og einkasundlaug gera eignina áhugaverða bæði fyrir þá sem vilja njóta hennar yfir sumarmánuðina og þá sem hyggjast dvelja hér stærstan hluta ársins.
Húsið er á lokastigum byggingar og verður tilbúið til afhendingar í Október.
Verð 299.500 evrur + 13-15% kostnaður.
Nánari upplýsingar um Ciudad Quesada hér
Ciudad Quesada, Spánn
Allar 14 myndir
Upp ↑












