fasteignasölur.is
Tjarnarlundur 16 - 401
Opið hús 24. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 31

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Tjarnarlundur 16 - 401 (H)

Um er að ræða endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á efstu hæð í mjög vel staðsettu fjölbýli á Brekkunni. Eignin er samtals 83,4 fm., þar af er sér geymsla í sameign 5,4 fm.. 


**Laus til afhendingar við kaupsamning**
**Rúmgóð þriggja herbergja íbúð**
**Efsta hæð, flott útsýni**
**Frábær fyrstu kaup**
**Ný eldhúsinnrétting, innihurðir og fleira**


Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, geymslu innan íbúðar, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, stofu og geymslu í sameign. 

Forstofa er með parket á gólfi. 
Hol er með parket á gólfi og tengir öll rými íbúðarinnar. 
Eldhús er með parket á gólfi, glæný innrétting frá IKEA með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgir. Glæsilegt útsýni til norðurs úr eldhúsi.
Geymsla/búr innan íbúðar er inn af eldhúsi. 
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og nýjir fataskápar í stærra herberginu. Búið er að skipta um glugga í báðum herbergjum. 
Baðherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, innréttingu í kringum vask, sturtu aðgreinda með glerskilrúmi og handklæðaofn. 
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi og þaðan er gengið út á sólríkar svalir til suðurs þaðan sem er glæsilegt útsýni. 

Annað:
-Nýtt eldhús (hurðar á innréttingu sem vantar eru í pöntun)
-Nýir rafmagnstenglar í eldhús og og rafmagnskaplar að mikluleiti endurnýjaðir í eldhúsi
-Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir
-Allir veggir málaðir nema í geymslu/búri
-Nýjar innihurðir
-Nýtt gólfefni í geymslu/búri, vínilparket 
-Nýr fataskápur í hjónaherbergi
-Skipt um alla tengla og rofa í ibúðinni 2015
-Skipt um glugga í herbergjum á norður hlið. 
-Húsið var sprunguviðgert og málað 2021
-Skipt um þakdúk og þakkant 2023
-Frábær staðsetning, stutt í íþróttasvæði KA, verslun og ýmis konar þjónustu

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Tjarnarlundur 16 - 401

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð83,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
48.900.000 kr.586 þ./m²
Byggingarár1976InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2151289Fasteignamat44.950.000 kr.Brunabótamat43.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑