fasteignasölur.is
Mánabakki 11
1 af 8

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt og frábærlega vel staðsett heilsárshús auk gestahúss í byggingu við Mánabakka 11 í Grímsnesi. Um er að ræða  135,2 fermetra steypt hús í nágrenni við Grímsborgir í Þrastarskógi teiknað af ARK arkitektum og stendur á eignarlóð að stærðinni 6.754 fermetrar. Húsið er klætt með álklæðningu að hluta og filterað og málað að hluta. Einstakt útsýni yfir Sogið og staðsetning lóðar er einstaklega góð. Eignin er í næsta nágrenni við frábæra golfvelli í Öndverðarnesi og Kiðjabergi. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is og eða Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing: Eignin skiptist í aðalhús með útsýni út á Sogið og gestahús með tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. 

Aðalhús: Komið inní anddyri og gert ráð fyrir fataskáp. Baðherbergi er öðru megin og þvottahús gegnt baðherbergi. Gólfhiti er í eigninni.
Alrými skiptist í stofu, borðstofu og eldhús. Arinn er í stofu með fallegu útsýni. Gólfsíðir gluggar, einstakt útsýni 
Í sitthvorum endunum eru svefnherbergi og innaf öðru þeirra er hægt að ganga í baðherbergið.

Gestahús: Gestahúsið er með forstofu, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. 
Geymslur eru tvær skv. teikningu. Möguleiki er að stækka eignina. 

Frágangur: Húsið er með viðhaldsléttri klæðningu, náttúrulegt grastorf er á þaki. 
Lóðin er frágengin við bílaplan.

Aðkoma: Lokað svæði með fjarstýringu og einnig er hægt að hringja í hliðið til að láta opna það.  Grímsborgir, Þrastalundur, Öndverðarnes eru í nokkurra mínútna fjarlægð.
Leiðarlýsing: 
Fyrsta beygja til vinstri næsta hverfi á eftir Grímsborgum Inná svæði og þar er keyrt í gegnum hlið, svo til hægri og vinstri. Þá er lóðin í enda og liggur við árbakkann.

Niðurlag: Húsinu er skilað í því ástandi sem það er í dag og gefur nýjum kaupanda tækifæri að velja sjálfur innréttingar og gólfefni.
Stutt til Selfoss til suðurs, eða Þingvalla til norðurs. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is og eða Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Mánabakki 11

805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð135,2 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
154.000.000 kr.1.139 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2343905Fasteignamat54.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑