Um eignina
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Árholt 9 Ísafirði - Mikið endurnýjað og einstaklega fallegt steinsteypt einbýlishús á einni hæð ásamt tvöföldum bílskúr. Bílskúr telst vera 45,5 m² og íbúðarhluti 142,2 m². Í garði er svo 15m² geymsluskúr. Frábær staðsetning í rólegu hverfi!
Í húsinu er forstofa, þvottaherbergi, opið eldhús, salerni, borðstofa, stofa og setustofa, gangur, baðherbergi og fjögur svefnherbergi.
Í bílskúr er geymsla og kyndiklefi.
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Þvottaherbergi með innréttingu inn af forstofu.
Komið inn í opið eldhús með nýlegri innréttingu, harðparket á gólfi, helluborð og ofn.
Stór og góð stofa/borðstofa og setustofa með harðparketi á gólfi, nýleg hurð út í garð og út á góðan sólpall.
Lítið salerni með flísum á gólfi.
Hitalagnir í gólfum nema í svefnálmugangi og svefnherbergjum.
Svefnaálmugangur með nýlegu harðparketi og fataskáp.
Fjögur góð svefnherbergi með nýlegu harðparketi gólfum. Stór fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar og sér walk-in sturta, hiti í gólfi.
Bílskúr nýtist að hluta sem geymsla, steypt gólf, hillur og raftstýrður opnari á annarri hurðinni, bílskúrshurðir eru timburhurðir.
Hellulögð aðkeyrsla og bílastæði. Stór gróinn garður með um 15 m² geymsluskúr.
Endurbætur seljanda:
2022 – Eldhús endurnýjað, dökk Ikea innrétting og tæki.
Nýtt harðparket sett á eldhús og stofu. Innrétting og flisar í þvottahúsi og forstofu, skápur í forstofu, nýjar innihurðir, loftaklæðning og lýsing í eldhúsi/stofurými.
Ný útihurð, ný hurð út í garð bakatil og stór nýr gluggi þar. Rafmagn - nýir tenglar. Hitalagnir í gólfum.
2025 - Svefnálma og herbergi - nýtt parket, skápur í gangi og innihurðir. Ný innrétting og klósett á salerni.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
Árholt 9
Staðsetning
Allar 37 myndir
Upp ↑



































