fasteignasölur.is
Skógargerði 2
Opið hús 24. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 38

Um eignina

Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Glæsileg 4ja herbergja íbúð í Skógargerði 2, 108 Reykjavík. Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða 106,2 fm íbúð í góðu tvíbýlishúsi, eignin er staðsett á rólegum og fjölskylduvænum stað í Fossvoginum.

Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu með útgengi á sólpall, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús í sameign og geymsla. Í kjallara er auka svefnherbergi, sem býður upp á fjölbreytta möguleika.

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Rúmgóð, falleg forstofa með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús & borðstofa: Eldhús og borðstofa eru í opnu, björtu og fallega hönnuðu samliggjandi rými.
Eldhús: Glæsilegt og vandað eldhús með AEG gas-eldavél. Á borðplötum er vandaður Granít steinn, sem setur mikinn svip á rýmið. Eldhúsið er með efri og neðriskápa, gott skápapláss. Það er opið við borðstofu og myndar þannig skemmtilega og samhangandi heild.
Stofa: Niður þrjú þrep af gangi, rúmgóð og glæsileg stofa sem getur einnig nýst sem notaleg betri stofa eða fjölskyldurými. Útgengi á rúmgóða sólpall.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskáp.
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi III: Gott svefnherbergi með fataskáp í kjallara.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með góðri walk-in sturtu.
Þvottahús: Þvottahús er staðsett í sameign.
Geymsla: í sameign.

Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin:
2026: 
Múrviðgerðir á húsi.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Skógargerði 2

108 Reykjavík · Austurbær
TegundHæðStærð112 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
94.900.000 kr.847 þ./m²
Byggingarár1932InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2036318Fasteignamat85.800.000 kr.Brunabótamat66.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑