fasteignasölur.is
Þingholtsstræti 30
Opið hús 28. sept. kl. 17:00–18:00
1 af 29

Um eignina

RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Glæsilega og rúmgóða 4 herbergja íbúð á 1 hæð á þessum vinsæla stað í Þingholtunum. Eignin er mjög vel skipulögð. Stórt hol, tvær góðar stofur og tvö herbergi. Eldhús og borðstofa í annari stofunni. Gott flísalagt baðherbergi. Eigninni fylgir einkastæði og stór bílskúr þar sem innréttuð hefur verið stúdíóíbúð. Stórt rými er einnig undir bílskúrnum sem einning er hægt að leigja út. Gengið er inní það rými fyrir aftan hús. Þar var áður aðstaða fyrir smíðavinnu. Hugsanlega hægt að innrétta aðra stúdíóíbúð eða nýta með öðrum hætti. 



*** Smelltu hér til að skoða eignina í þrívídd - 3D ***



Eignin Þingholtsstræti 30, fnr. 200-6726, er skráð sem hér segir hjá FMR: birt stærð 198.3 fm. Íbúðin sjálf á 1 hæðinni er 99,6 fm.  Bílskúr er skráður 98,7 fm. 


Húsið er teiknað af Þóri Baldvinssyni, arkitekt, árið 1955. Þórir var atkvæða mikill arkitekt um miðja síðustu öld var í hópi fyrstu kynslóða fúnkís-arkitekta á Íslandi. Húsið ber vott um fágaðan arkitektúr og framsýni. 


Nánari lýsing:
Gólfefni: Ljóst parket er á öllum rýmum íbúðar utan eins herbergis. Flísar á baði.
Gengið inn í íbúð frá sameigninlegum björtum og rúmgóðum stigagangi með þar sem er lyfta.
Forstofa og hol. Rúmgott hol sem tengir aðrar vistarverur íbúðarinnar saman. 
Stór, björt og falleg stofa þaðan sem áður var opið inn í hina stofuna en hefur verið lokað með léttum þilum, sem auðvelt er að fjarlægja. Undanfarið hefur þessi stofa verið nýtt sem þriðja svefnherbergið.
Eldhús og borðstofa er saman í stórri stofu. Eldhús með vandaðri viðarinnréttingu, steinn á borðum. Útgengt er á vestur svalir úr þessu rými.
Stórt hjónaherbergi með góðum skápum og tveimur gluggum. 
Hitt svefnherbergið er rúmgott með glugga. 
Baðherbergi er flísalagt gólf og veggir. 
Mjög stór bílskúr á tveimur hæðum. Tveir inngangar. Einkabílastæði fyrir framan bílskúr Þingholtsstætismegin sem gæti rúmað tvo litla bíla. 
Efri hæð bískúrs er innréttuð sem íbúð og er í útleigu.
Neðri hæð bílskúrs er nýttur í dag sem geymsla og hluti leigður út sem slíkt. Inngangur garðmegin. Mögulega er hægt að breyta hluta þessa rýmis í stúdíóíbúð. 

Sérgeymsla er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjóla- og vagnageymslu.


Framkvæmdir:
2026: Skólplagnir endurnýjaðar undir húsi. 
2026: Neysluvantslagnir endurnýjaðar inn í húsið og í kjallara. Tilbúið til að fara upp. 
2025: Var farið í múrviðgerðir og innsprutun í múr þar sem þurfti.
2024: Íbúð í bílskúr endurnýjuð og tekin í gegn. 
2024: Settir nýir ofnar í bílskúr. 
2022: Skólplagnir myndaðar og metnar.


Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali


Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta þína eign.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.
Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.

Þingholtsstræti 30

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð198,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
115.900.000 kr.584 þ./m²
Byggingarár1957InngangurMargir inngangarBílskúrLyftaFasteignanúmerF2006726Fasteignamat111.850.000 kr.Brunabótamat71.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑