Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 128,4 m2, 4ra herbergja endaíbúð á efstu hæð (3. hæð) með glæsilegu útsýni í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Gerplustræti 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 128,4 m2 þar af íbúð 110,1 m2 og geymsla 18,3 m2. Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu í kjallara. Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Stórar svalir (15,5 m2) með svalalokun í suðvesturátt. Frábær staðsetning, rétt við nýjan leikskóla og Helgafellsskóla. Stutt í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og bekk. Flísar á gólfi.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er í björtu rými með parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir með svalalokun í suðvesturátt með glæsilegu útsýni.
Eldhús er með fallegri U-laga innréttingu. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, helluborð með innbyggðum með innbyggðum gufugleypir og blástursofni. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er rúmgott með innréttingu, skáp, walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gólf er flísalagt og veggir að hluta.
Þvottahús er inn af baðherbergi með innréttingu, þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurkarra í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Geymsla er í kjallara. Er skráð 18,3 m2.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu merkt B17 fylgir eigninni. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi frá ON við stæðið.
Eigninni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Verð kr. 91.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Gerplustræti 2
Staðsetning
Allar 38 myndir
Upp ↑




































