Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt sumarhús ásamt gestahúsi á 23.000 m2 eignarlóð á grónum stað við Neðra-Apavatn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Eignin er kölluð Hléskógar. Lóðin er skógi vaxin útivistarparadís og liggur að Apavatni sunnanverðu. Eigninni fylgir jafnframt 1/9 af 26,5 hektara lóð í óskiptri sameign (F2344955). Eignin er samtals skráð 112,8 m2, þar af sumarhús 83,8 m2 og gestahús 29 m2. Sumarhúsið skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Gestahús skiptist í tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sér inngönguhurð er í bæði svefnherbergi. Varmadæla er í alrými aðalhúss til upphitunar auk rafmagnsofna í flestum rýmum. Hitakútur fyrir neysluvatn er bæði í aðalhúsi og gestahúsi. Sér kaldavatnsborhola fylgir eigninni. Góð timburverönd er við bæði hús. Á lóðinni standur geymsluskúr og reykhús. Fallegar gönguleiðir eru á lóðinni og við vatnið er lítil bryggja, aðeins nokkrum skrefum frá aðalhúsi. Frábær staðsetning, stutt frá mörgum af helstu náttúruperlum Suðurlands auk verslunar og þjónustu á Laugarvatni. Að lóðinni liggur góður malarvegur frá Laugarvatnsvegi. Lokað símahlið er til að komast inn á svæðið. Veiði í vatninu fylgir sem og í Vatnsholtslæk. Innbú utan persónulegra muna getur fylgt með í kaupunum. Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Helstu framkvæmdir samkvæmt seljanda: Vatnslagnir endurnýjaðar 2019. Pallur byggður 2020. Ný varmadæla 2020. Hús klætt að utan 2020. Skipt um alla glugga 2020. Nýtt eldhús og tæki 2020. Nýtt parket 2020. Bryggja byggð 2021. Reykhús byggt 2022. Ný rotþró fyrir aðalhús 2024. Ný rotþró fyrir gestahús 2024. Gestahús byggt 2023-2025.
** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent **
Nánari lýsing:
- Aðalhús
Forstofa er með parketi á gólfi, fataskáp og fatahengi.
Stofa/borðstofa er stór og björt, opin við eldhús, með parketi á gólfi og arni. Útgengt er á timburverönd úr stofu.
Eldhús er með parketi á gólfi og fallegri U-laga hvítri innréttingu með bakaraofni, helluborði, háfi og uppþvottavél. Ísskápur stendur við hlið innréttingar.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu með handlaug, gólfsalerni, sturtuklefa og handklæðaofni. Opnanlegir gluggi er í rýminu.
- Gestahús
Svefnherbergi 1 er rúmgott með parketi á gólfi. Sér inngangur er í rýmið.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi. Sér inngangur er í rýmið.
Baðherbergi er milli svefnherbergja og er innangengt í bæði herbergin. Parket er á gólfi, innrétting með handlaug, upphengt salerni og sturtuklefi. Þvottavél og opnanlegur gluggi eru í rýminu.
Geymsluskúr og reykhús standa á lóð við sumarhúsið. Bryggja er við vatnið, stutt frá aðalhúsi.
Verð kr. 92.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Neðra-Apavatn Hléskógar
Staðsetning
Allar 58 myndir
Upp ↑
























































