fasteignasölur.is
Sævangur 41
1 af 31

Um eignina

Valborg ehf kynnir eignina Sævangur 41, 220 Hafnarfjörður, 172 ferm. eldra einbýlishús á pöllum (auk kjallara) á fallegri og gróinni lóð með einstöku sjávarútsýni á besta stað við Sævanginn ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.  Húsið þarfnast nokkurs viðhalds og því tilvalið fyrir handlagna einstaklinga til að taka til hendinni og gera það að sínu.  Húsið er að hluta til timburhús byggt 1955 og síðan steypt viðbygging sem er byggð í kringum 1970. 
Meðal þess sem þarf að taka til hendinni er að nokkrir gluggar eru með móðu á milli glerja og þakið er orðið gamalt á húsinu svo eitthvað sé nefnt.  Einnig þyrfti að leggja dren við húsið.

Bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson, í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.

Eignin Sævangur 41 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 208-0171, birt stærð 172.2 fm.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 

Sævangur 41

220 Hafnarfjörður
TegundEinbýlishúsStærð172,2 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
Tilboð
Byggingarár1955InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2080171Fasteignamat120.850.000 kr.Brunabótamat70.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangNóatúni 17, 105 ReykjavíkSími419-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑